Ægir - 01.01.1921, Page 19
ÆGIR
13
verði á steinolíu, og alt útlit er til þess
að vélbátaútvegur verði að hætta, en af
því leiðir aftur auðsjáanlegt verðfall fast-
eigna og lausafjár á þeim stöðum hér
eystra, sem byggja framtíð sína á þessum
atvinnuvegi. Skorar því fjórðungsþingið á
stjórn Fiskifélags íslands að beita sér
fyrir því:
1. Að reynt verði að fá hagkvæm kaup
á steinolíu.
2. Ef eigí tekst að fá hagkvæm kaup á
steinolíu, þá taki landsstjóruin einka-
sölu á henni samkvæmt lögum frá
14. nóv. 1917 og verð hennar verði
eigi hærra en 100 kr. fyrir fatið til
þeirra, sem nota hana til fiskiveiða.
Mismun verðsins greiði ríkissjóður og
taki þá fjárhæð aftur með auknum
sköttum.
II. Fjárhagsáœtlun Fiskijélags íslands
fgrir 1922.
Nefndin, sem hafði það mál til með-
ferðar, lagði fram tillögur um breytingu á
fjárhagsáætluninni og voru þær samþykt-
ar með öllum atkvæðum.
Einnig var samþykt að fela nefndinni
að semja ýtarlegt nefndarálit og senda það
ásamt breytingarlillögunum til stjórnar
Fiskifélags íslands, sem allra fyrst.
III. Fiskimat.
Nefndin lagði fram svohljóðandi tillögu:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskifelag
íslands að htutast til um við Alþingi að
fiskimatslögunum frá 1909 verði nú á
þessu Alþingi breytt þannig, að þau fyrir-
skipi mat á öllum söltuðum fiski í hvaða
ástandi sem er, og fluttur er héðan af landi«.
Eftir nokkrar umræður var lillagan sain-
þykt með öllum atkv.
IV. S&mvinnumál.
Nefndin lagði fram þessa tillögu:
»Fjórðungsþingið ályktar, að leggja beri
meiri áherzlu á samvinnu milli íiskideilda
fjórðungsins en gert hefir verið hingað til
um þau mál, er sjávarútveginn varða
innan fjórðungsins, svo sem beitukaup,
kaup á salti. veiðarfærum o. fl. Telur
fjórðungsþingið æskilegt, að erindreki fé-
lagsins vinni að því að koma slíkri sam-
vinnu á og styðji hana bæði í umburðar-
brétum og ferðum sínum um fjórðunginn.
Væutir félagið þess, að laun erindrekans
verði hækkuð svo, að hann geti óskiftur
gefið sig við starfanum meiri hluta ársins
og ferðast að minsta kosti tvær ferðir um
fjórðunginn.
Tillaga þesei var umræðulítið samþykt
í einu hljóði.
3. fundur (17. des.).
Tekið var fyrir:
1. Strandferðir.
Nefnd sú, er hafði mál þetta til með-
ferðar, lagði fram svo hljóðandi tillögu:
»Fjórðungsþingið leyflr sjer að kvarta
um það, hve strandferðir í Austfirðinga-
fjórðungi hafa verið ófullnægjandi og óhag-
kvæmar, og skorar á stjórn Fiskifjelags
íslands að beita sér fyrir því með áhrifum
á ríkisstjórnina og stjórn Eimskipafélags
lslands, að strandferðir komist í betra
horf, þannig:
1. Að beint samband við höfuðstað lands-
ins verði oftar en verið hefir, sérstak-
lega haust og vor, í maí og júní og í
sept., okt. og nóvember.
2. Að lagður verði svo ríflegur styrkur
til fjarðabáts úr rikissjóði, er gangi frá
Hornafirði til Raufarhafnar, að viðun-
andi bátur fáist til þeirra ferða.
3. Að misrétti það, sem landsmenn verða
fyrir utan bæjanna á farmgjöldum,
verði lagað, svo að flutningar til allra
góðra hafna á landinu á vörum frá