Ægir - 01.01.1921, Page 21
ÆGIR
15
ælti að byggjast á undan vitannm á
Kambanesi«.
Tillagan samþykt i einu hljóði.
V. Hafnarbœtur.
Nefndin lagði fram svo hljóðandi tillögu:
»Fjórðungsþingið lýsir yfir því, að þar
sem sjósókn vélbáta um langan veg sé
orðin svo dýr, að telja rnegi að hún sé
óframkvæmanleg, þá beri að leggja fyllstu
áherzlu á allar hafnarbætur á þeim stöð-
um, sem liggja næst fiskimiðunum. Út af
því leyfir fjórðungsþingið sér að skora á
stjórn Fiskfélagsins að fá framkvæmda-
rétt sem allrafyrst:
1. Rannsókn og umbætur á bátalegu á
Hornafirði, svo véibátar geti verið
tryggir fyrir isreki, og hin svo kölluð
»Læna« verði dýpkuð svo að bátar
geti farið eftir henni þó lágsjávað
væri.
2. Að framkvæmdar verði hið bráðasta
lendingabætur á Skálum á Langa-
nesi«.
Tillagan samþykt með öllum atkvæðuin.
VI. Kosning fulltrúa á Fiskiþing.
Þá fór fram kosning fulltrúa á Fiskiþing
fyrir Austfirðingafjórðung til næstu 4 ára
og hlutu þessir kosningu:
Aðalfulltrúar: Bjarni Sigurðsson, hrepp-
stjóri Eskifirði og Herin. Þorsteinsson,
erindreki Seyðisfirði, báðir með 6 at-
kvæðum.
Varafulltrúar: Ingvar Pálmason, útvegs-
bóndi Norðfirði með 6 atkv. og Sveinn
Árnason, yfirfiskimatsmaður Seyðisf. með
5 atkv.
Þá Iagði Bjarni Sigurðsson fram svo-
hljóðandi tillögu:
»Fjórðungsþingið lítur svo á, að hag-
kvæmt sé að Fiskþing komi saman á hverju
á þeim tíma sem alþingi er háð og
leyfir sér að beina því til stjórnar Fiski-
félagsins að undirbúa það mál fyrir næsta
Fiskiþing«.
Tillagan samþykt með öllum atkvæðum.
VII. Kosið i stjórn ffórðungsþingsins.
Forseti: Ingvar Pálmason, Norðfirði,
endurkosinn. Ritari: Herm. Þorsteinsson,
Seyðisf., endurkosinn. Varaforseti: Vil-
hjálmur Árnason, Seyðisf., endurkosínn.
Vararitari: Marteinn Þorsteinsson. kaupm.
Fáskrúðsfirði með ölluin atkvæðum.
Samþykt með öllum atkvæðum að
næsta fjórðungsþing skyldi háð á Norðfirði.
Fleiri mál voru ekki tekin fyrir á þing-
inu. — Þinginu slitið.
Ingvar Pálmasson, Herm. Porsteinsson,
(forseti). (ritari).
Bjarni Sigurðsson, Vilhj. Arnason.
Bjarni Nikulásson. Sig. Eiríksson.
Li'iðvík S. Sigurðsson.
Rétta útskrift staðfestir
Vilh. Árnason
varaforseti.
Nýr gjörðardómur.
Fyrir forgöngu Verzlunarráðs íslands
hafir verið stofnaður hér í bænum í haust
gerðardómur verzlunar- og siglingarmál-
um. Var reglugerð fyrir dóminn samþykt
23. okt. f. á. Föstudaginu 14. janúar má
segja að dómurinn hafi tekið til starfa. Þá
var haldinn fyrsti aðalfundur hans og
stjórn kosin.
Ætlunarverk dómsins er að skera úr
allskonar deiluin er rísa út af viðskiftum,
framleiðslu, siglingum og vátryggingum.
Dómnefndin sein heima á i Reykjavík er
skipuð 24 mönnum og tilnefnir Verzlun-
arráðið þá. Eru þeir úlnefndir til tveggja
ára og gengur helmingurinn úr nefndinni