Ægir - 01.01.1921, Síða 22
16
ÆGIR
árlega. Kaupraannafélag Reykjavíkur gerir
tillögur um helming dómnefndarmanna
fyrir 30. nóv. ór hvert en tilnefningin fer
fram eigi síðar en 15. des. Eru dómnefnd-
armenn tilkvaddir með tilliti til sérþekk-
ingar á ýmsum viðskiftum og forgöngu í
ýmsutn atvinnugreinum. — Dómnefndin
kýs sér sjálf formann og tvo varaformenn
úr sínum fiokki og ræður formaður nefn-
inni ritara, er sé lögfræðingur. — Aðal-
fundur skal haldinn fyrir 14. jan. ár hvert.
í hverjum gjörðardómi silja þrír dóm-
endur og skipar fonnaður þá. Ef gjörðar-
dómurinn getur ekki orðið sammáia um
úrslit máls, tilnefnir formaður dómnefndar
tvo menn i viðbót í gjörðardóminn og
ræður stðan afl atkvæða málsúrslitum. Um
starfsháttu dómsins og verksvið segir
nánar fyrir í reglugjörð hans.
Lttill vafi ætti að vera á því, að þessi
nýja stofnun verði mikið notuð. í stað
þess að fara til dómstólanna, sem í deilu-
málum viðskiftalegs efnis verða allajafna
að sækja sérþekkingu til verzlunarfróðra
manna, geta menn lagt málið fyrir hinn
nýja gjörðardóm og fengið úrskurð hans.
Mun óhætt að ætla að þessi leið reynisl
allajafna fljótfarnari en dómstólaleiðin, og
má gera ráð fyrir að gjörðardómurinn
verði ætíð þannig skipaður, að dómend-
urnir hafi einmitt þá sérþekkingu, sem
nauðsynleg er í hverju ináli. Og hvað lög-
fræðislega hlið málsins snertir, þá er trygg-
ing fengið fyrir þvf, að farið sé í öllu að
lögum, með því að hafa lögfræðing fyrir
ritara i dóminum.
Á aðalfundinum var formaður dómsins
kosinn Ásgeir Sigurðsson stórkaupmaður,
varaformaður var kosinn A. V. Tulinius
og annar varaformaður Björn Kristjánsson.
Endurskoðendur voru kosnir Carl Olsen
stórkaupmaður og Jón Björnsson kaupm.
íslenzki fiskimarkaðurinn,
Fyrir nokkru stóð í erlendum sím-
fregnum ummæli úr skýrslu yfirkonsúls
Norðmanna á Spáni, um fiskmarkað
Norðmanna, og hver áhrif íslenzki fisk-
urinn hefði á sölu hans og verðlag.
Morgunbl. hefir borist aðalatriðin úr
ummælum norslca konsúlsins. Rekur
hann þar allítartega sögu fiskimarkaðs
Norðmanna og ber saman fiskútflutning
þeirra við önnur fiskframleiðslulönd. svo
sem Færeyjar, England, Nýfundnaland
og fleiri.
Ummæli konsúlsins um íslenzka fisk-
inn eru þau, að hann sé stöðugt að
ryðja sér meira og meira til rúms á
spanska markaðinum. T. d. fái Burges
nú allan þann fisk, sem bærinn og sam-
nefnt hérað noti, frá íslandi, en áður
hafi það verið ágætur markaður fyrir
stóran norskan fisk. Og það sem geri
það að verkum, að norski íiskurinn selj-
ist þolanlega á Spáni enn þá, sé, að
hann sé ódýrari en sá íslenzki. En yfir-
leilt segir hann að norski fiskurinn þyki
verri. Spánskir fiskikaupmenn segir hann
að leggi mikla áherzlu á að fiskurinn
líti fallega út, og þar skari íslenzki fislc-
urinn langt fram úr; hann sé hvitari og
venjulegast betur þurkaður.
Konsúllinn segir enn fremur, að áður
fyrri hafi norski fiskurinn ráðið verðlagi
á spánska markaðinum, en nú sé það
islenzki fiskurinn, sem geri það.
Að síðustu gefur hann fiskiframleið-
endum Noregs þau ráð, að vilji þeir
standast samkepni við ísl. fiskinn og
þann færeyska, þá verði þeir að gera
sér meira far um að framleiða betri
vöru. Fiskurinn verði að slægjast, fletj-
ast og þurkast betur. Fiskur frá Sunn-
mæri reynist bezt, vegna þess að með-