Ægir - 01.01.1921, Side 24
Í8
ÆGIR
útgerðarmanna. Peim er sjálfum mestur
hagur að þvi, að varan sé vel verkuð
og að sem bezt verð fáist fyrir hana —
og að því marki keppir »islenzka síld-
arsamlagið«.
Stjórnina skipa þeir Richard Thors,
P. A. ólafsson, Augúst Fljrgenring og
Ásgeir Pétursson.
Sjómannaheimilið í Hafnarfirði.
17. des. s. 1. kl. íi var gestaheimili
Hjálpræðishersins í Hafnarfirði vigl, af
foringja hersins hér á landi hr. S. Graus-
lund. Var byrjað á srníði hússins í sumar
snemma og er það nú fullbúið að öllu
leyti, að kalla má.
Hús þetla er úr sleinsteypu, 2G álnir á
lengd og 14 álna breitt. Á neðslu liæð
hússins í veslurenda er fnndarsalur og
stórt herbergi, sem ekki hefir enn verið
gengið frá að öllu leyti, en notað verður
sem sveínherhergi þegar frá líður, en í
austurenda eru tvö herbergi með tveimur
rúmum hvort, og liefir Hjálpræðisherinn
lofað að hafa þau ávalt reiðubúin handa
sjúklingum þegar á þarf að halda. Á neðstu
hæðinni er enn fremur þvoltakjallari og
eldiviðargeymsla.
Á annari hæð — aðalhæðinni — er í
vesturenda aðalsamkomusalurinn og nær
hann yfir þvert húsið. En i auslurenda
eru að norðanverðu tvær setustofur handa
gestum, borðstofa og lestrarherbergi, en að
sunnanverðu eru tvö herbergi handa heim-
ilisfólkinu, og eldhús.
Á efstu hæðinni eru gestaherbergin, og
eru t þeim rúm handa 15 manns; eru
herbergin 7 alls; eru 3 þriggja manna her-
bergi, tvö tveggja manna og tvö ein-
býlisherbergi. Auk þeirra eru á þessari
hæð sveínherbergi foringjanna, sem annast
um húsið. Herbergi þessi eru öll íburðar-
laus, en smekkleg og þrifleg.
Allur frágangur hússins virðist vera hinn
vandaðasti. Hafir það lcostað 100 þúsund
krónur, auk þess sem ýmsir hafa lagt því
til með ókeypis vinnu og gefnu efni og
áhöldum. Virt er það því til brunabóta
fyrir meiri upphæð, 120 þúsund krónur.
Yfirsmiðurinn var Ásgeir Stefánsson i
Hafnarfirði.
I ræðunni sem kapt. Grauslund hélt við
vígsluathöfnina skýrði hann frá sögu húss-
ins frá byrjun. Kvað hann allmikla erfið-
leika hafa verið á byggingunui, ilt að fá
peninga, og í slað þess að menn liefðu
vonast eflir verðlækkun á efni liefði alt
sligið. Til húsbyggingarinnar hefðu safnast
23 þúsund krónur og hefði það verið alt
að þriðjungi þeirrar upphæðar, sem gert
hefði verið ráð fyrir að húsið myndi kosla,
en nú þyrfti að safnast um 10 þús. kr. í
viðbót, því venjan væri sú, að fá þriðjung
koslnaðar með samskotum. Fyrir liönd
bæjarins talaði Pórður læknir Edilonsson,
er mætti í stað bæjarstjóra, sem var fjar-
verandi. Pakkaði hann Hjálpræöishernum
slarf hans þar, og árnaði hinu nýja sjó-
manna- og gestaheimili góðs gengis. Enn
fremur löluðu Sveinbjörn Egilson rilstjóri,
Sigurgeir Gíslason og foringi hersins í
Hafnarfirði, ungfrú Nielsen. Fór vigsluat-
höfnin hið besta fram.
Auk þess að hús þella er hernum til sóma,
er það Hafnarfirði til gagns og væri vel farið
ef Hafnfirðingar vildu nú verða braulryðj-
endur að því, að í kirkjur þeirra og skip
væru bengdir upp peningabaukar með
áletrun: »Munið eftir sjómannaheimilinu«,
Slíkt er altítt erlendis og getur hver og
einn lagt sinn stóra eða litla skerf í bauk-
ana; ætti slíkt að geta orðið hernum ein-
liver slyrkur. Aðeins að á þessu væri
byrjað þá er mikið unnið og slíkir bauk-
ar ættu einnig að hanga á veggjum borð