Ægir - 01.01.1921, Page 28
22
ÆGIR
að svo stæði. Var þá skolið á fundi í
deildinni og enn á ný kosin 5 manna
nefnd. Hún skrifaði stjórn Fiskifélags ís>
lands um hvernig komið væri með fram-
kvæmd loforðsins, og bað stjórnina að
hefjast handa og reyna að fá verkið þegar
unnið. Nefndin skrifaði líka vitamála-
stjórn ríkisins, og lofaði vitamálasljóri
sinni aðstoð um það, sem ekki kæmi til
útgjalda af ríkisfé, enda var að svo komnu
máli ekki farið þess á leit. Nefndin fór á
fund Iiaraldar Böðvarssonar, sem kvað
framkvæmdaleysið ekki vera sína sök, og
það skyldi ekki standa á sinum parti, en
kvað þeita vera orðið of seinl, vegna
veðráttu. Nefndin fór einnig á fund Lofts
Loftssonar. Hann var hinn bezti heitn að
sækja, en sagði að drátturinn stafaði af
steinlimsskorti; og það var víst satt, að
síðari hluta sumarsins var víst ekki gott
að fá þá vöru, en sú viðbára hefir að
likindum verið gripin sem hvert annað
örþrifaráð, þegar í óefni var komið. Eða
eg fæ ekki skilið að loforðið um jafn-
þýðingarmikið verk þyrfti endilega að
verða meira en 9 mánaða gamalt, þegar
hugsað væri til framkvæmda á þvi. Og
það er víst, að sleinlim var fáanlegt i
júli og ágúst, og jafnvel síðar. Nú þóttist
hann vilja drífa þetta i gegn, ef hann
fengi efnið einhversstaðar. Nefndin fór til
vitamálastjórans, og kvaðst hann vilja
lána 10—15 tunnur af steinlimi, og var
með þvi afráðið að hefja verkið þegar, og
talið víst, að ef þetla efni dygði ekki, þá
mundi viðbótin fásl einhversstaðar. Svo
leið nóvember. f*á fréttist að enn væri
ekki verkið hafið, og um það leyti átti
eg tal við Harald, og kom þá í ljós,
að þeir höfðu gleymt að ná i möl og
sand, og lítt framkvæmanlegt að það
væri flutt sjóveg, og þá i desember sjór
farinn að verða úfinn, dagur stuttur og
frosta von á hverri stundu. Þessar við-
bárur voru ekki ósannar, en af hverju
það var dregið svona lengi, skilur vist
enginn nema Haraldur og Loftur, því
óhugsandi er það, að þeir hafi ætlað sér
að leiða sjómennina, sem leila sér atvinnu
og efla sinn og þeirra hag í Sandgerði, og
Fiskifélagsstjórnina af með fögrum loforð-
um einum saman, og lála sér nægja það,
að þeir gætu altaf tekið vitagjaldið úr
eigin hendi og reiknað hæð þess eftir
þörfum. En það er líka óhugsandi, að
þeim hér eftir takist að telja nokkrum trú
um það, að þeir geri það, sem þeir lofa
að gera eftir beiðni sjómanna, og þeim er
lil verndar og bjargar í brimi, liafróti og
náttmyrkri.
í janúar 1921.
Svbj, Oddsson,
Fiskifélag Islands
10 ára
7. febrúar 1911—7. febrúar 1921.
Stjórn Sjálfsslæðisflokksins skipuðu vel-
urinn 1910—11 þeir dr. Jón Þorkelsson,
séra Ólafur Ólafsson, Brynjólfur Björns-
son tannlæknir, Þorleifur Jónsson póst-
meistari og Árni Jóhannsson bankaritari.
Þessir 5 menn héldu stjórnarfundi reglu-
lega einu sinni á viku allan veturinn á
skrifstofu, sem Sjálfstæðisfélagið leigði á
Hotel ísland. Á þessum fundum sinum
skeggræddu þeir um landsins gagn og
nauðsynjar og meðal margs annars, setn
bar á góma, áttu þeir tal um það, hve
lítið væri gert til þess að greiða götu
sjávarútvegsins, og fuudu glögt þörfina
á þvi að auka og efla samlieldni og
samtök meðal þeirra, sem af þeirri at-
vinnu lifa og að meira væri gert til þess