Ægir - 01.10.1923, Blaðsíða 14
156
ÆGIR
Nú í safnast nafnaskrá
njótar Drafnar funa,
sem að Hafnarfirði frá
fieyta stafnajór á sjá.
Jéls þó skvaldri jötuninn
Jóhann Baldvinssonur,
býr á kalda brimvöllinn
bárutjaldinn löngum sinn.
Gnoð á karfagrund setur
gætinn, djarfur, hagur,
hafs við starfið hugprúður
Halldórs arfi Guðmundur.
Þó LJður djarfa ýfist há,
— aflastarfi vanur —
Kristján arfi Ólafs þá
ýtir karfagrund út á.
Árna kundur Árni snar,
essið sunda leiðir
hvals á grund þó hljóðdimmar
hvini stundum bárurnar.
Eins nær risla öldurnar,
aflasýsli vanur,
lóðsar Gisli’ á grænan mar
gnoð, þó hvísli stormvindar.
Reiðarfrón þó rótist um,
og reiður tóni Kári,
stafnaljóni ’á straumröstum
stýrir Jón frá Oddsbænum.
Kár’ þó víða veki són,
valinn- fríðan -reiða
lætur skríða’ um fiskafrón
frá Hraunprýði mætur Jón.
Daníel ætið arfi hans
einnig lætur vaða,
fram á strætin flyðrulands
fleygið mætur týrinn brands.
Hátt þó freyði hafröstin,
hvals á breiða vega,
heppinn leiðir Hendrik sinn
Hansen reiða-gulltoppinn.
Hátt þó skvaldri Hræsvelgur
hvals á kalda vegu,
bárutjaldinn býr hraustur
bur Sigvalda Guðmundur.
★ ★ ★
Lundum klæða’ í lengd og bráð
lukkugæði veitist;
alla bæði’ um lög og láð
leiði hæða jöfurs náð.
Gamall Hafnfirðingur.
Lög
um atvinnu við siglingar.
(í 1.—2. tölublaði »Ægis« p. á. birtist I. og II.
kafli laga um atvinnu við siglingar eða það, sem
réttinduin á smáskipum alt að 60 rúmleslum
áhrærir. Framhald sömu laga verður nú birl hér).
III. KÁFLI.
Um rétt til skipstjórnar og stýrimensku
i utan- og innanlandssiglingum á íslenzku
fiskiskipi og rétt til skipstjórnar og stýri-
mensku á íslenzku verzlunarskipi i inn-
anlandssiglingum eigi yfir 300 rúmlestir.
9. gr. Rétt til að vera skipstjóri í inn-
an- og utanlandssiglingum á islenzku
fiskiskipi og i innanlandssiglingum á ís-
lensku verzlunarskipi, eigi yfir 300 rúm-
lesta að stærð, hefir sá eiun, sem fengið
hefir skipstjóraskírteini á fiskiskipi.
10. gr. Sá einn getur fengið skipstjóra-
skírteini á fiskiskipi, sem:
a. staðist hefir fiskimannapróf eða íar-
mannapróf við stýrimannaskólann í
Reykjavík;
b. hefir verið stýrimaður i 18 mánuði