Ægir - 01.01.1925, Síða 10
•2
ÆGÍfí
Suðurland.
Þar byrjaði vertíðin strax upp úr ára-
mótunum, og var þegar í janúarmánuði
góður aíli i Sandgerði og veiðistöðvun-
um kring um Reykjanes, sjerstaklega
fiskaðist óvenjuvel á Stokkseyri, Eyrar-
bakka og öðrum brimasömum veiði-
stöðvum hjer sunnanlands, og stafaði það
aðallega af því hve sjór var kyr um það
leyti sem netaveiðin stóð yfir, og er sagt
að aðeins hafi komið fjórir dagar alla
vertíðina, sem ekki var róið úr Vest-
mannaeyjum sökum veðurs, og þó að
Vestmannaeyingar sjeu sjógarpar miklir,
þá er slíkt þó óvanalegt.
Aftur á móti virðist fiskimagnið á Sel-
vogsbanka eða kring um Vestmannaeyjar
ekki hafa verið mikið meira en árið áður,
því meðalveiðin á bát þaðan, var ekki
mikið meiri en á vertíðinni 1923 og hjá
færaskipunum, sem nú eru altaf að fækka,
jafnvel minni.
Dagar færaskipanna virðast nú bráð-
um taldir, því engu hefir verið bætt við
þann flokk skipa nú á seinni árum, en
þau látin ganga úr sjer, eftir því sem þau
eldast og farast.
Þó var eitt sldp (Veiðibjallan) sem áður
hefir verið notuð til utanlandssiglinga
gerð út á handfæraveiðar á vertiðinni,
en fiskaði lítið.
Eins og veðráttan var hagstæð til sjáv-
arins hjer sunnanlands á vertíðinni var
hún það ekki síður á landi, og var byrj-
að að þvo út fisk til þurkunar viðast
hvar snemma á vertíð, enda voru þá
sifeldir þurkar og 17. maí fór fyrsti farm-
urinn af sólþurkuðum fiski frá landinu,
þurkaður á árinu, og var þá búið að
senda eitthvað í smásendingum áður til
umskipunar í Bergen, til Miðjarðarhafs-
landanna. Eftir þetta fór hver fiskfarm-
urinn út á fætur öðrum, enda hjelst
þurkatíðin að heita mátti alt sumarið,
verkunin hefir því orðið töluvert ódýrari
en vanalega og nýting á fiskinum betri.
Sökum hagfeldrar veðráttu voru litlar
slysfarir fyrri hluta ársins og veiðafæra-
tap sömuleiðis lítið, en veiðafærin eru
eins og kunnugt er stór útgjaldaliður,
einkum síðan að þorskanetin komu til
sögunnar.
Vesifirðir.
Á Vestfjörðum hefir aflinn orðið nærri
helmingi meiri en árið 1923, eða 40 þús.
skpd. og þar í talin 5096 skpd. sem Vest-
fjarðabátarnir fiskuðu fyrir Suðurlandinu
á vetrarvertíðinni, og seldu sumt af því
sunnanlands en fluttu nokkuð heim til
verkunar.
Fyrri helming ársins voru hæstu hlutir
á ísafjarðarbátunum kr. 4000.00.
Aflahlaup þau, sem vanalega komu í
Isafjarðardjúpið um miðsvetrarleytið liafa
ekki gert vart við sig undanfarandi ár,
aftur á móti var góð veiði þar á vor-
vertíðinni, og mun það mest að þakka
beitusíld þeirri sem aflaðist í Inndjúpinu
um það leyti, en smásíld hefir ekki feng-
ist þar á fjörðunum í nokkur ár, en var
áður vön að koma þangað á hverju vori
og fyigdu henni þá ávalt fiskigöngur.
Á sumum stöðum á Vestfjörðum, t. d.
Tálknafirði og Vikum, var ágætur afli
fyrri hluta sumarsins, en minni norðan-
til á fjörðunum, en aftur á móti var þar
steinbitsafli meiri en nokkru sinni áður,
og síðan að Vestfirðingar fóru að breyta
til um verkunaraðferð á honum, og fram-
leiða binn svokallaða »steinbítsrikliug«
hafa þeir fengið tryggan og góðan mark-
að innanlands, t. d. í Reykjavík fyrir
þessa vörutegund, svo í mörgum tilfell-
um er sú veiði eins affarasæl og þorsk-
veiðin.