Ægir - 01.01.1925, Blaðsíða 11
ÆGIR
3
Ennfremur rættist þar nokkuð úr með
þorskveiðina i norðurfjörðunum, þegar
leið á sumarið.
Enginn eíi er á því, að bætt landhelgis-
gæsla fyrir Vestfjörðum í sumar, á tölu-
verðan þátt í því hve góðan árangur ára-
bátaveiðin hefir gefið þar í ár, enda er
smábátaútgerðin ennþá svo stór þáttur
á fiskframleiðslu vorri, að hún á fyllilega
skilið að hún sje styrkt eftir megni í
baráttunni fyrir tilveru sinni.
Veðráttan var allhagstæð til fiskverkun-
ar mikinn hluta sumarsins, og var sól-
þurkað mikið af þeim fiski, sem fiskað-
ist frá Vesturlandinu, og auk þess flutt
töluvert af fiski þangað frá Suðurlandinu
til verkunar.
Austfirðír.
Á Auslfjörðum hefir árið sömuleiðis
verið mjög gott, og eru hlutföllin þá hjer-
umbil þau sömu og á Vestfjörðum.
Á seinni árum hafa bátarnir af norð-
urfjörðunum stundað veiði frá Hornafirði
fyrri hluta vertíðar, og hafa þeir aukið
framleiðslu fjórðungsins töluvert með því
móti.
Á seinni árum hafa Austfirðingar keypt
nokkra stóra mótorbáta og stunda á þeim
færafiski fyrri hluta sumars, og er útlit
fyrir að það muni gefast vel.
Beituleysi hefir verið einn af mestu
erfiðleikum útgerðarinnar á Austurlandi
nú í mörg ár, því sildin hefir svo sem
kunnugt er, lagst frá þeim hluta landsins
nú um tíma, en áður fyrri var síldin
vön að vera þar mikinn hluta ársins.
Verða Austfirðingar því að sækja mest
af sinni beitu til Norðurlandsins og er
það miklum erfiðleikum bundið.
Samtals var afli á Austurlandi um 30
þús. skpd. á árinu.
Óþurkar voru þar miklir í sumar og
mikið flutt út af óverkuðum fiski,
Norðurland.
Á Norðurlandi eru þorskveiðarnar, að
því virðist, heldur í hnignun.
Færaskipunum hefir fækkað þar eins
og víða annarstaðar, enda er þar varla
mikils að sakna, því svo mörg mannslíf
fylgdu þeim vanalega síðustu ferðina, og
margra ára reynsla var búin að sanna, að
þau voru ekki fær um að mæta þeim
veðrum, sem þau þurftu að geta staðist og
sem altaf er von á hjer við land, bæði vor
og haust.
Sama er með tilraunir þær, sem gerðar
voru fyrir nokkrum árum frá Norðnr-
landinu, með veiði á stærri vjelabátum
fyrir Vestfjörðum eða frá Suðurlandinu
á vetrarvertíðinni.
Fessum tilraunum hefir alveg verið
hætt, og má nú heita að mörg af stærstu
mótorskipum frá Norðurlandinu stundi
ekki aðra veiði en síldveiðina að sumr-
inu, og svo annaðhvort færa- eða línu-
veiði að vorinu, áður en síldveiðarnar
byrja. Þó stundaði eitt þilskip þaðanfæra-
veiðar alt siðastliðið sumar.
Tilraunir voru á þessu ári gerðar frá
Norðurlandinu með dragnótuveiðar (snur-
revaad) á mótorbátum, bæði fyrir og eftir
síldveiðina og fóru bátarnir sjálfir með
afla sinn til Englands og seldu hann þar.
Tilraunin sem gerð var fyrir síldartím-
ann hepnaðist allvel og mun hafa gefið
góðan arð, en sú tilraun sem gerð var
að haustinu til, mislukkaðist, því tveir
af bátunum sem stunduðu hana ráku á
land i Húsavík í stormi, og skemdust,
og báturinn sem sigldi með veiðina til
Englands varð þar fyrir vjelabilun, sem
tafði hann um langan tíma.
Árabátaveiðin hefir verið stunduð með
miklu kappi og ágætum árangri frá Norð-
urlandi i sumar, enda gekk fiskur þar
að landinu óvenju snemma, einkum þó
jnn á Skagafjörð. Meðalafli á bát með