Ægir - 01.01.1925, Síða 13
ÆGIR
út síld fyrir rúmlega 51/* milj. krónur og
er þar ekki meðtalið sýldarlýsi eða síld-
armjöl.
Yfirlit.
Fiskverðið má telja að haíi verið mjög
gott alt árið, og fer jafnt og stöðugt hækk-
andi alt árið, stafar það tnikið af því að
markaðurinn og eflirspurn eftir fiski í
Miðjarðarhafslöndunum er stöðugt að
aukast og okkar fiskur að vinna sér
nýja og nýja markaði.
Sömuleiðis hafa saltfisksveiðar Frakka
við Newfoundland mishepnast í ár og
hefir það mikil áhrif á okkar saltfisksölu,
en ekki síst mun það hafa haft áhrif á
verðið, hve lítið var liggjandi af fiski á
markaðinum frá fyrra ári, en sá fiskur,
ef mikið er af honum, fellir nýju fram-
leiðsluna þegar hún fer að koma á mark-
aðinn og heldur þar af leiðandi verðinu
niðri.
Við byrjun ársins var fiskverðið kring-
um 145 kr. pr. skpd,, en við lok ársins
var það kom)ð í 225 kr. pr. skpd. Petta
er mikil hækkun þó eingöngu væri miðað
við isl. peninga með óbreytanlegu gengi,
en sé miðað við útlenda mjrnt, eða um
leið athugað hvað ísl. peningarnir hafa
hækkað í verði á árinu, þá verður hækk-
unin stórkostleg, t. d. 12. mars kostar
eitt pd. sterling kr. 33.95 en um áramót-
in lcr. 28.00, en þrátt fyrir þessa hækkun
á íslenzku krónunni hefir verðið á fisk-
inum innanlands altaf farið hækkandi
alt árið.
Alls hefir verið flutt út á árinu 40.915.579
kg. af verkuðum fiski og 13.743.788 af
óverkuðum fiski.
I útílulningnum 1924 eru talin með
5.514.720 kg. = 34.467 skpd. sem voru
liggjandi hér frá f. á. (1923) og mun nú
um áramótin vera liggjandi töluvert meira
af fiski í landinu, þó er það ekki svo
mikið, að nokkur hætta sé á, að það muni
hafa lækkandi áhrif á þessa árs fram-
leiðslu, enda er nú stöðugt verið að skipa
því út til útflutnings og birgðirnar í Mið-
jarðarhafslöndunum nú mjög litlar af
fiski.
Hlutföllin á milli smáútgerðarinnar og
togaranna liafa breyzt töluvert á þessu
ári, enda hafa togararnir verið fleiri i ár
en áður, og auk þess hafa þeir stundað
saltfiskveiðar óslitið að heita má alt árið,
en undanfarandi hafa þeir annaðhvort
legið sumarmánuðina, þeir sem ekki hafa
stundað síldveiðar, eða þá fiskað í ís og
siglt með aflann ferskan til Englands.
I sumar aftur á móti hafa þeir haft
góða veiði út af ísafjarðardjúpi, á svo
kölluðum, »Hala«, svæði sem að vísu var
áður þekt, en alment ekki stundaðar
fiskiveiðar á fyr en nú tvö siðustu ár,
enda oft eklci hægt að halda sér þar sök-
um hafísa. Auðvitað hefir stundum mikið
af þeirri veiði, sem togararnir hafa fengið
þar verið upsi, en þó að hann hafi verið
verðminni en þorskurinn, þá er þó »fleira
matur en feitt ket«.
Eftir þvi, sem næst verður komist
munu togararnir hafa fiskað i ár c. 43 %
af allri saltfiskframleiðslunni miðað við
vigt, en þar sem tiltölulega er minna af
upsa eða ódýrum fiski í afla þeirra verð-
ur það ekki eins mikið að verðmæti.
Skipaeign landsmanna hefir aukist tölu-
vert á árinu, sjö nýjir togarar bæzt við
og von á mörgum íleiri, til Vestmanna-
eyja og Keflavíkur hafa verið keyptir
nokkrir mótorbátar og ennfremur hafa
margir gufubátar verið keyptir frá Nor-
egi og víðar, er meiningin að þeir verði
notaðir til línuveiða og síldveiða, og sið-
astliðna vertíð gekk einn gufubátur á
línuveiðar hér sunnanlands alt vorið, og
lánaðist allvel.
Það er álit margra að gufubátar verði