Ægir - 01.01.1925, Side 15
ÆGIR
1
þeírra og lands. Þegar inn er komið, er
svo rúmgóð höfnin að þar geta legið
mótorbátar svo tugum eða jafnvel hundr-
uðum skiptir, á lygnum sjó með ágæt-
um haldbotni.
Vegna þess að sum skerin, sem verja
höfnina eru blindsker, ættu ókunnugir
skipstjórar að hafa leiðsögu kunnugs
manns í fyrsta sinn, sem þeir sigla iun á
höfnina. Annars er leiðin auðrötuð og
hættulítil, enda aldrei orðið þar nein
slys, fyr eða síðar.
Leirhöfn er fremur grunn, eigi nema
6—8 metra dýpi þar sem bálalægið er
bezt. Hefði hún verið dýpri, væri þar
sjálfsagt fyrir löngu komin síldveiðastöð.
Og vel má það vera, að við nákvæma
mælingu og kortlagningu kæmi það i ljós,
að hún væri nægilega djúp öllum skip-
um, sem nú eru í ferðum hingað til
lands.
Eins og leiðir af legu Leirhafnar, svo
nærri útskaga og djúpmiðum, er þaðan
skamt að sækja til flskjar. Á grunnið
kringum Rauðanúp eru að eins fáar
kvartmílur, og vestur á hin viðáttumiklu
fiskimið norðan við Mánáreyjar er skemra
en úr nokknrri annari höfn. Allur Ax-
arfjörður liggur vel við, og til Grímseyj-
ar og út á Grimseyjarsund er svipuð
leið og frá Húsavík. Austur fyrir Slétlu
er að vísu lengra en frá Raufarhöfn eða
Rórshöfn, en á beztu miðin sem sótt er
frá þeim stöðum er samt ekld lengra frá
Leirhöfn en 30—40 kv.m.
Um fiskigöngur í nágrenni Leirhafnar
er það að segja, að þær eru, eins og
annarsstaðar talsvert misjafnar frá ári til
árs. Hin siðastl. þrjú ár virðast þær hafa
aukist mjög. Síðastlið sumar var kring-
um Rauðanúp liinn mesti uppgripaafli,
sem dæmi eru til hér Norðanlands. Og
meðfram allri strandlengju Axarfjarðar
var mergð af ungfiski, sem gefur svo
góðan afla á næstu árum.
Þess má að lokum geta, að Leirhöfn
er vel í sveit komið, þótt á útskaga sé.
Melrakkastéttan og nágrannasveitirnar
eru góð landbúnaðarhéruð, og skamt til
verzlunarstaðar, Kópaskers, þar sem jafn-
an má fá vörur sem til útgerðar heyra,
með sanngjörnu verði. En á staðnum er
eitt af vönduðustu og fullkomnustu járn-
smiðaverkstæðum landsins (eign hr. Krist-
jáns Kristjánssonar) og geta skip og bát-
ar fengið þar aðgerðir á vélum sinum
fljótt og vel af hendi leystar, en skipin
haft örugt lægi rneðan á aðgerðínni
stendur.
Þegar flutningar til Leirhafnar og frá,
taka að aukast, þá mun auðvelt að fá
skip til að koma þar við, þar sem slað-
urinn er svo nálægt alfaraleið skipa, sem
sigla fyrir Norðurlandi.
Einar Sigfússon.
Fundargerð.
Ár 1924 þriðjudaginn 7. okt. var fund-
ur haldinn í Fiskiveiðadeildinni »Báran«
i Keflavík, i Barnaskólahúsi hreppsins
og hófst kl. 8 e. h.
Mættur var á fundinum forseti Fiski-
félags Islands hr. Kristján Bergsson,
Fundarstjóri var kosinn Árni G. Þór-
oddsson og ritari Jóhann Ingvason.
Tók þá:
1. Forseti Kristján Bergsson fyrstur
til máls og mintist á landhelgis-
varnirnar, taldi hann nauðsyn til
bera að auka landhelgisvarnirnar og
að menn þeir, sem gæzluna annast
séu vopnaðir. Eftir allmildar um-
ræður, var samþ. svohlj. tillaga: