Ægir - 01.01.1925, Síða 24
16
ÆGIR
arskip og ýmiskonar björgunartæki koma
eflaust að haldi víða; en það er ekki
aðalatriði þessa máls.
Sýnishorn sýna, að um 80 manns far-
ast af sjóslysum árlega hér á landi, og
oft meira. Hagstofan metur hvert manns-
lif á 15—20 þús. kr., og jafnvel meira,
eftir þeim auði, er hver fulltíða, vinn-
andi maður skilar þjóðarbúinu. það verða
ægilega háar tölur, hroða fjártjón fyrir
þjóðina, þegar 80—90 manns og oft meira
fer árlega í sjóinn. En alt það tjón og
harmur, er druknanasljrsin valda vanda-
fólki þeirra, er eftir lifa, er ómetanlegt
og verður eigi með tölum einum vegið.
Ritað í lok nóvbr. 1924.
Frá sjónum.
Skipströnd hafa orðið mörg hér við
land síðan vetur byrjaði og i janúar má
heita svo, að hvert stórviðrið hafi rekið
annað.
Hinn 2. janúar strandaði þýzkur tog-
ari »Ulrick Schulmeyer« vestan við
Hjörtsey á Mýrum. Mannbjörg varð.
Nóttina milli 5. og 6. janúar strand-
aði enskur togari »Venator« G. Y. 827, á
Bæjarskerseyri við Miðnes; yfirgáfu skips-
menn skipið og komu hingað á mótor-
bát, en björgunarskipið »Geir« náði tog-
aranum út og flutti hann hingað — að
kalla óskemdan.
Á skipinu var skipstjóri sá, er í fyrra
sýndi varðskipunum mótþróa, (»þór« og
»Enok«); þektist hann hér og var þegar
settur í varðhald; hefir hann nú játað
á sig brotin, dómur er uppkveðinn og
hann dæmdur í 20 þúsund króna sekt.
Byrjaði hann þegar að sitja sektina
af sér.
Hinn 8. janúar strandaði við Meðal-
land vöruflutningaskip útgerðarmanns,
Hellyers í Hafnarfirði. Skipshöfnin komst
á land hinn 9., en þar eð strandmenn
vissu eigi hvert halda skyldi, héldu þeir
kyrru fyrir á Sandinum þangað til mánu-
daginn hlnn 12. Þá urðu Meðallendingar
varir við þá og léiðbeindu þeim til bæja.
Voru strandmenn þá þjakaðir mjög.
Nafn skipsins var »Riding«.
Hinn 13. janúar strandaði við Þorláks-
höfn »Viscount Allenby«, togari Hellyers
í Hafnarfirði; var hann a leið frá út-
löndum og átti að stunda veiðar i Hafn-
arfirði.
Um klukkan 9 um kvöldið fréttist
hingað um strandið og sendi loftskeyta-
stöðin þegar boð um það til skipa og
svaraði »Belgaum« þegar, að hann færi
á vettvang. Björgun tókst þó áður skip
komu og fer hér á eftir skýrsla um að-
gerðir Þorlákshafnarmanna, tekin eftir
Morgunblaðinu:
»13. janúar kl. 5 e. h. urðu menn í
Þorlákshöfn varir við skip stranda á Þor-
lákshafnartanga, utanvert við svo nefndar
Flisjar. Veður var ekki hvast, en dimt
af fannkomu. Leist mönnum svo á, sem
þetta myndi vera útlendur togari, með
alókunnugri skipshöfn.
Þorleifur Guðmundsson bóndi í Þor-
lákshöfn brá þegar við með heimamenn
sína, og fór með fjórða mann út á tang-
ann. Kynti hann bál, til þess að gefa skip-
verjum vitneskju um, að menn væru á
vettvangi, til þess að reyna að bjarga þeim.
Óbrotinn sjór gekk yfir togarann, þar
sem hann stóð í stórgrýtisurð, og var
með öllu óhugsandi, að koma bát við,
til þess að ná i skipsmenn. Þeir höfðust
við á stjórnpalli.
Skipið var svo nálægt landssteinum,
að á að giska 15 faðmar voru milli þess
og þurrar fjöru með útsogum. En 3—4