Ægir - 01.01.1925, Qupperneq 26
18
ÆGIR
Miveiðar Wimumi
í október 1924, tekið úr skýrslu
»Fiskiveiða og siglingaráðs Canada«.
í októberniánuði voru flult á land til
hafna, er liggja að Atlantshafi og Kyrra-
hafi 74,901,500 pund af allskonar fiski
og verð þess afla 1,950,152 dollarar. I
október 1923 var afli 53,235,400 pund og
verð hans 1,615,712 dollarar.
Atlantsbafld.
Við.strönd þess var afli alls af þorski,
ýsu, kolmúli og Pollock (lýri) i október
1924 13,212,700 pund. I október 1923 var
allur aflinn 14,715,900 pund, þorskur var
3,100,000 pund minni en 1924, en meira
veitt af ýsu og öðrurn fisktegundum.
Síldaraflinn í október var 3,642,600 pd.
og er það 1,860,300 pundum meira en í
október árinu áður. Mest af hinni veiddu
síld hefir verið notað til beitu.
Makrílveiðin varð 3,023,200 pund; í
október árinu á undan var hún 918,900
pund.
Sardínuveiðar 46,375 tunnur komu á
land; eru það 13,256 tunnum meira en
aflaðist í október 1923. Veiðar með lag-
netum byrjuðu þennan mánuð, en afli
varð rýr, að eins 196,900 pund flutt á
land.
Ostrur 13,857 tunnur fengust og er það
1,758 tunnum meira en í október 1923.
Humar (Lobster). Afli var 380,100
pund; í október 1923 var hann 609,200
pund. Síðan veiðin byrjaði hafa 26,862,300
pund aflast; af þeim afla hafa verið út-
flutt 6,622,199 pund með skel og 100,486
kassar af humar í dósum. Á jafnlöngum
veiðitíma 1923, var afli 37,276,100 pund.
Selt þegar á land kom, til neyzlu 7,965,900
pund, afgangur 29,310,200 pund lagt nið-
ur i dósir og urðu það 146,436 kassar.
Kyrrnhafsströndin.
Af lúðu veiddist í októbermánuði 1924
2,441,200 pund; í október 1924 1,849,200
pund.
Laxveiði í oklóber varð 33,491,500 pd.;
í október 1923 var hún 13,675,100 pund-
um minni. Soðið niður í mánuðinum
257,406 kassar, sama mánuð 1923,176,449
kassar.
Pilchards (Sardinutegund). Á land var
flutt 1,274,200 pund; er það 1,076,500 pd.
meira en í október 1923.
Síldveiði var 4,211,300 pund, er hún
meira en helmingi meiri en á sama
tímabili 1923. Eins og að undanförnu
var meiri hluti síldarinnar saltaður og
hún send til Austurlanda.
2 fiskimenn druknuðu við Atlantshafs-
strendur i októbermánuði.
Olíufatagerð.
Hr. Hans Kristjánsson á Suðureyri
við Súgandafjörð, hefir byrjað olíufala-
gerð þar á staðnum.
Sendi hann skrifstofu Fiskifélagsins
sýnishorn af iðnaði sínum; var skýrt
frá fyrirtækinu í flesium blöðum bæjar-
ins og mönnum boðið að skoða olíuföt-
in. Ber öllum, er skoðað hafa, saman
um, að frá fötuuum sé prýðilega gengið
og iburður virðist góður, en hjer syðra
hafa þau eigi verið reynd.
Hugmynd Hans er að hreinsa, gera
við og bera í gömul olíuföt og væri
óskandi að það kæmist á, þar eð það
mundi spara mikið fé.
Fyrir veslan eru menn farnir að nota
fötin. Fiskifélagið hefir styrkt Hans
Kristjánsson lítið eitt er hann byrjaði
fyrirtæki þetta.