Ægir - 01.01.1925, Side 29
ÆGIR
21
maðurinn einnig um höfuð fisksins með
TÍnstri hendinni og stingur honum á flein-
inn, svo að fleinninn rekst í gegnum tálkn-
opið og stýrir þannig fiskinum svo, að
hann lendir nákvæinlega rétt fyrir hnifinn,
og er þá handavinnan búin. Síðan koma
tveir armar upp úr borðinu, sitt hvoru
megin við fleininn og ýta fiskinum áfram
á hnífana, sem breikkar eftir því sem ofar
dregar og sniður þá efri egg hans fram
og upp til kverksigans og svínið í sundur
en neðri egg hans sniður niður og fram
gegnum hnakkafiskinn, þar til haus og
bolur falla sinn hvoru megin, hvor í sina
reunu. Armarnir, sem fluttu fiskinn, síga
nú lóðrétt niður og færast undir borðiuu
í áttina til mannsins, koma svo upp og
ýta næsta fiski. Meðan að armarnir flytja
fiskinn móti hnífnum, grípur maðurinn
næsta fisk og stingur á fleiuinn og svo
koll af kolli. Með þessari tilhögun, er erf-
iði hausingarmannsins gert svo einfalt og
laust við strit, sem frekast er unt og þar
eð maðurinn getur strax slept fiskinum,
þegar hann er fastur á fleininum er engin
slisahætta við vinnuna.
Með ofangreindri vinnuaðferð geta menn
hæglega hausað 15 til 20 fiska á mínútu,
án nokkurs tillits til stærðar fisksins. En
á kappmótum í Englandi, þar sem menn
hafa leitast við að ná sem mestum vinnu-
hraða, hausa menn að meðaltali 24 til 26
fiska á mínútu og eru það með 8 stunda
vinnudegi 12,500 fiskar á dag, eða næst-
um fjögra manna verk. Þar við bætist, að
vélin hausar altaf jafn vel, svo að vél-
hausaður fiskur er hérum bil 5°/o þyngri,
heldur en handhausaður.
Til samauburðar má geta þess, að það
er talið hjer meðalmannsverk að hausa
5 til 6 fiska á mínútu af vertíðarþorski
og ufsa. (Framh.).
Samsæti
hélt Stjórnarráð íslands allri skipshöfn á
varðskipinu »Þór« og skipstjóra Jóni
Kristóferssyni á »Enok«, sem nú verður
fyrsti stýrimaður á wÞór®, föstudagskveld
hinn 23. janúar. í forföllum forsætisráðherra
mætti atvinnumálaráðherra Magnús Guð-
mundsson og skrifstofustjóri Guðmundur
Sveinbjörnsson. í samsætinu tóku og þátt
fulltrúi Sigf. Johnsen, yfirdómslögmaður
Steindór Gunnlaugsson og boðnir voru
forseti og ritari Fiskifélagsins. Atvinnu-
málaráðherra bauð gesti velkomna og
mintist á hina ötulu framgöngu skipstjóra
og yfirmanna, við strandvarnir síðastliðið
ár, auk þess ávarpaði hann alla skipshöfn
í einu. Skipstjóri á »Þór« Jóhann Jóns-
son þakkaði/fyrir þá viðurkenningu, sem
landsstjórnin sýndi sér og skipshöfn sinni
og forseti Fiskifélagsins mintist Björgunar-
félags Vestmannaeyinga og starfs »í5órs«.
Samsætið fór fram á »Hótel ísland«.
^unnudagur
§;j ó iii aim a.
Á Akranesi er nú ákveðið að halda
sjómannamessu sunnudaginn 1. febrúar.
Undanfarið hefur töluvert verið ritað um
þetta í blöðum hér. Stafa þau skrif mest
af því, að undirritaður tók eigi nægilega
fram í smágrein í Morgunblaðinu um
þessa lofsverðu ákvörðun Akranessafn-
aðar, hve mikið hefði verið gcrt í þessa
átt í höfuðstaðnum, en það þekkja svo
margir, að ég áleit þess ekki þörf. í þessu
máli hafa þó Akranesbúar orðið á undan
öðrum; þeir hafa samþgki að draga upp
þjóðarfánann sem virðingarmerki fyrir