Ægir - 01.01.1925, Qupperneq 32
24
ÆGIR
talinn nær 1,7 mlij. kr. virði. Um kútt-
arana er óvíst.
4 marsvinahlaup komu og 1047 hvalir
veiddust. Stórhvelaveiðar voru reknar
frá einni stöð og 183 hvalir veiddust.
(Úr Fiskeri Beretning for 1923).
Frá Horni til Eyjafjarðar
(Akureyrar) 1907.
Var hœgur við Horn, cn fór hvessandi á norðvestan.
Glæðist kaldinn Horni hjá,
hvítnar aldan prúða;
yfir Mjaldurs mjúka lá
mjakar tjaldi súða.
Að siglukrúnu keyrist voð,
kólgu-hrúnast jörðin,
áls á túni öslar gnoð
yfir Húnafjörðinn.
Geyst nú skeiðar gammurinn;
guma eyðir baga
að eftir freyðir aldan stinn,
alla leið að Skaga.
Hlés að vanga »Hliðin« sést,
hátt þó gangi sjórinn;
fram hjá Drangey flýtnr bezf,
fagur ranga jórinn.
Fram hjá Barði hoppar hátt —.
Hnýsujarðar linni;
sést nú skarða’ i suðurátt
Siglufjarðar mynni.
Lækkar sól við sila jörð. —
Sævar-góli vanur
fyrir Ólafs- úfinn -fjörð
öldu- rólar -svanur.
Fjörður Eyja opnast fer,
inn hjá beygist »Múla«;
hvít, með reiging hreykir sér
hægra megin »Súla«.
Beint við fleyi blasir hér
bœrinn meigin-friður;
og upp á vegi eftir mér
unga meyjan bíður.
Gamli.
Af hákarlaveiðum.
Bárur rísa, vöknar voð
vitt á hnýsu grunnum;
fljótt að Hrísey flýtur gnoð,
full af lýsistunnum.
Höf. ókunnar.
Sjóraerki.
GrJtnni ljósbauju hefir verið lagt út við
flakið af »Inger Benedicte«, sem sökk á
innsiglingarleiðinni inn á Reykjavíkurhöfn.
Skip, sem sigla inn á höfnina í hvitu ljósi
frá Reykjavikurvitanum, skulu hafa þessa
bauju, sem sýnir grænan blossa á 4 sek.
bili, á stjórnborða, og gæla þess að beygja
ekki fyr en þau eru komin það langt inn
fyrir baujuna, að þau hafi hafnarmynnið
þvert fyrir.
Reykjavík 14. janúar 1925.
F. h. vitamálastjórans.
B. Jónsson.
Hafnarstjóri hefir gert þær ráðstafanir,
sem auðið er, svo skipsflakið verði ekki
að grandi og eru menn ámintir að fara
eftir þvf, sem auglýsingin, sem er í Lög-
birtingablaðinu, bendir á.
Ritstjóri Sveinbjörn Egilson.
Prentsmiðjan Gutenberg.