Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1928, Side 3

Ægir - 01.03.1928, Side 3
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS. 21. á arg. Reykjavík —■ Mars 1928. Nr. 3. „Jón forseti" strandar. Eitt af hinum hörmulegustu sjóslysum hjer. 1 aðfaranótt mánudags 27. febrúar, e®a þar um bil, strandaði togarinn „Jón f°rseti“ á Stafnesi. Er það rétt hjá Staf- Nesvita. Er þar að allra sögn einhver ^inn versti og hættulegasti staður hér á 'andi, fyrir skip, sem stranda. Rifið er langt frá landi og er þar sífelt brim þótt sJór sje hægur annarsstaðar. En að þessu s'nni var brim mikið. ^kipið var að koma vestan úr Jökul- 'ijúpi og ætlaði suður á Selvogsgrunn. i'iniið fór vaxandi með flóðinu, og gfengu brotsjóir yfir skipið hver á fætur öðruni. Reis skipið nokkuð að framan, og leituðu hásetar sér skjóls frammi undir -hvalbak”. Skipið sendi út neyðarskeyti °g varð fyrsta skipið á vettvang „Tryggvi gamli“. Kom það þangað kl. 6 um morg- Uninn. Var þá niðamyrkur, svo dimt að ” Fryggvi gamli“ sá skipið alls ekki, fyi’ en fór að birta, eða um klukkan 7%- Komu nú þarna smám saman fleiri skip, togarinn „Ver“ og „Hafstein“, en gátu enga björg veitt mönnuin um borð í „Jóni forseta“. Litlu seinna kom björg- unarskipið „Þór“ einnig á vettvang og 2 bátar frá Sandgerði, mannaðir mönnum, sem eru gjörkunnugir á þessum slóðum. Allan daginn, fram í myrkur var björg- unartilraunum haldið áfram af mesta hetjudug og dugnaði. En brotsjóirnir slitu sjómennina af skipinu, einn á fætur öðr- um, án þess við yrði ráðið. Þegar fram á daginn kom sáu skipin, sem þarna voru, að þau fengu ekkert að gert og týndust burtu srnám saman. — Eitt hið seinasta, er fór af vettvangi, var „Tryggvi gamli“. Kom hann hingað um kvöldið klukkan 10 og flutti hingað lílc 5 manna, af skips- höfn „Jóns forseta“, sem höfðu fundist á reki framundan skerinu, sem hann strand- aði á.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.