Skinfaxi - 01.08.2010, Blaðsíða 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
„Verkefnið var mjög hvetjandi og
skemmtilegt. Ég er stærðfræðikennari,
hef rosalega gaman af tölum, og að sjá
þetta svona talrænt þegar maður skráir
inn þátttöku sína er mjög hvetjandi fyrir
mig,“ sagði Ragnheiður Sveinbjörnsdótt-
ir sem er einn af þátttakendunum í verk-
efninu Hættu að hanga! Komdu að hjóla,
synda eða ganga. Hún sagðist aðallega
hafa gengið á fjöll á höfuðborgarsvæðinu,
Úlfarsfellið, Helgafellið og Esjuna. Svo
gekk hún einnig á Hafnarfjall sem hún
hafði aldrei gert áður.
Verkefnið hjá UMFÍ
var mjög hvetjandi
– Hefur þú alla jafna verið dugleg að
hreyfa þig?
„Já, ég hef verið það. Ég byrjaði samt
ekki að hreyfa mig fyrir alvöru fyrr en eftir
að ég byrjaði í framhaldsskóla. Ég hef
verið að hlaupa mikið og verkefnið hjá
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir:
Fólk er duglegra að hreyfa sig
nú en áður
UMFÍ fannst mér vera mjög hvetjandi.
Ég fór t.d. í göngutúra að verða níu á
kvöldin, bara til að klára þessa þrjá kíló-
metra til að geta skráð því að ég ætlaði
mér að ná gullinu. Það gekk allt saman
eftir,” sagði Ragnheiður.
Andleg vellíðan
– Hvað gefur hreyfingin þér yfirleitt?
„Tvímælalaust andlega vellíðan. Þegar
ég er pirruð í skapinu segir eiginmaður
minn að ég ætti að fara að drífa mig í
göngutúr. Mér finnst vakning í gangi í
þjóðfélaginu fyrir hreyfingu almennt.
Mér finnst fólk allt í kringum mig vera
miklu duglegra að fara í göngutúra en
áður. Hreyfing í mínum huga er ekki bara
að grenna sig heldur ekki síður að líða
vel á líkama og sál. Ég er núna komin 27
vikur á leið og kannski þess vegna hef ég
ekki hreyft mig nærri jafnmikið í sumar
og hefði notað óléttuna sem afsökun ef
ég hefði ekki verið að taka þátt í þessu
verkefni,“ sagði Ragnheiður.
Vakning á vinnustað
Ragnheiður sagði að hópur af vinnu-
stað hennar í Hólabrekkuskóla hefði
gengið saman á Helgafell og Úlfarsfell og
vakning í þessu efni hefði verið töluverð
á vinnustaðnum. Ragnheiður sagði
að sér hefði fundist þetta verkefni
skemmtilegt og það er ætlun hennar
að halda áfram að skrá og vera dugleg.
„Maður heldur áfram að hreyfa sig
og hugsa vel um heilsuna í framtíðinni.
Maður er miklu frekar tilbúin að takast á
við hlutina í lífinu, vinnuna og heimilið,
með því að hreyfa sig reglulega,“ sagði
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir í samtali
við Skinfaxa.
Stjórn HSK hélt stjórnarfund í höfuð-
stöðvum Ungmennafélags Íslands, mið-
vikudaginn 15. september sl. Að sögn
Engilberts Olgeirssonar, framkvæmda-
stjóra HSK, er þetta í annað sinn sem
héraðssambandið heldur stjórnarfund
utan síns svæðis. Stjórnarfólki í HSK var
sýnt hið nýja húsnæði UMFÍ og síðan
var því kynnt starfsemi hreyfingarinnar.
Engilbert sagði fundinn með UMFÍ hafa
verið upplýsandi fyrir alla. Hann sagði í
nógu að snúast um þessar mundir og
næg verkefni fram undan. Nefna má að
Héraðssambandið Skarphéðinn fagnar
100 ára afmæli í ár og í haust mun koma
út glæsileg 500 blaðsíðna bók um sögu
sambandsins.
Stjórn HSK hélt stjórnarfund í höfuðstöðvum UMFÍ
Hluti starfsmanna UMFÍ og stjórnarmenn
HSK. Efri röð frá vinstri: Sigurður Guðmunds-
son, Engilbert Olgeirsson, Alda Pálsdóttir,
Sæmundur Runólfsson, Bergur Guðmunds-
son, Lára B. Jónsdóttir, Helgi Kjartansson,
Hansína Kristjánsdóttir. Neðri röð frá
vinstri: Helga Dagný Árnadóttir, Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, Guðríður
Aadnegard og Fanney Ólafsdóttir.
Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir
segir að hún sé
miklu frekar til-
búin að takast á
við hlutina í lífinu,
vinnuna og
heimilið, með
því að hreyfa sig
reglulega.