Ægir - 01.01.1938, Qupperneq 18
10
Æ G I R
Austurlandi og síðastliðið sumar. Þetta
stafar aðallega af þvi, að þeim bátum
fjölgar ört, er stunda síldveiðar og drag-
nótaveiðar, enda þykir það ábatasamara
en þorskveiðarnar.
Á síðastliðnu sumri stunduðu síld-
veiðar 29 vélbátar og dragnótaveiðar 23
bátar. A vetrarvertíðinni var ekki um út-
gerð að ræða frá öðrum stöðum en
Hornafirði og' Fáskrúðsfirði. Síðast í
febrúar fóru bátarnir af hinum norð-
Jægari fjörðum að færa sig suður til
Hornafjarðar, en um veiði var þó al-
mennt ekki að ræða þar, fyrr en í marz-
mánuði. 1 byrjun febrúar var Joðnugengd
í Hornafirði og virtist þá vera nokkur
afJ.i, en þá voru bátar almennt ekki
Joúnir til veiða. Vertíðin í Hornafirði brást
alveg, og má það merkilegt Iieila að fislc-
ur skyldi ekki fylgja loðnugengdinni.
Nokkuð mun það hafa bætt úr fyrir út-
gerðinni, að mjög litlu þurl'ti að eyða í
beitukostnað, því að þar var oftast nóg
loðna, og voru aðgerðarmennirnir i
landi látnir veiða hana, og varð það
mjög kostnaðarlítið.
Frá Djúpavogi gengu að þessu sinni
eilgir aðkomubátar á vertíðinni. En þar
Jiafa nokkrir bátar, frá hinum nyrðri
Austfjörðum, stundað þorskveiðar und-
anfarandi ár.
I apríl aflaðist vel á grunnmiðum
sunnan lil á Austfjörðum, sérstaklega á
Djúpavogi. Sæmilegur afli var á grunn-
miðum fram eftir sumri í veiðistöðvun-
um sunnan Gerpis, og voru þær veiðar
stundaðar á opnum vélbátum, og nær
eingöngu notuð liandfæri.
Undanfarin ár liefir mesl af þeim
fislci, sem veiðst liefir síðara hluta sum-
ars, verið fluttur út ísaður. I ágúst og
september síðasti. var þó elckert flutt út
af ísuðum fiski frá Austfjörðum, en aft-
ur á móti noklcuð í október og nóvember,
og voru það togarar, sem keyptu fislc-
inn.
Mótorbáturinn „Stella“ frá Norðfirði
fór, fyrri hluta vetrar, tvær ferðir til
Englands með ísaðan fisk, og' mb.
„Sleipnir“ eina ferð. Haustvertíðin á
Austurlandi var yfirleitt mjög léleg.
Frá Hornafirði gengu 15 vélbátar vfir
12 lestir og 12 minni, með samlals 104
manna áliöfn, og er það 3 bátum færra
en árið áður. Einn af stóru bátunum
fórst í marz, svo varla er hægt að telja
nema 14 báta yfir 12 lestir. Vertíðin
stóð yfir í 2% mánuð. Ársafli 491 smál.
(334).
Frá Djiipavogi gengu 13 opnir vélbát-
ar, með 46 manna áliöfn, og er það 4
stórum vélbátum færra en árið áður.
Veiði var elckert stunduð þar eftir júlí-
Jok, en þrátt fvrir það var afli með bezta
móti. Ársafli 73 smál. (34).
Frá Stöðvarfirði gengu 9 opnir vélbát-
ar og 5 árabátar, með samtals 38 menn,
og er það sama bátatala og árið áður.
Ársafli 100 smál. (102).
Frá Hafnarnesi og Skálavík gengu 14
opnir vélbátar og 6 árabátar, með sam-
tals 42 menn, og er það 7 trillubátum og
1 árabát fleira en árið áður. Ársafli 144
smál. (97).
Frá Fáskrúðsfirði gengu 7 vélbátar
yfir 12 lestir og' 3 minni, með 40 manna
áhöfn, og er það 3 vélbátum færra en
árið áður. Ársafli 303 smál. (248).
Frá Vattarnesi gengu 11 opnir vélbát-
ar og' 4 árabátar með 44 menn, og er það
sama bátatala og fyrra ár. Hákarlaveiði
var lítilsháttar stunduð þar um vorið, en
veiði var lítil. Ársafli 123 smál. (86).
Frá Reyðarfirði geklc 1 vélbátur undir
12 lestir og 3 opnir vélbátar, með 12
manna áliöfn. Ársafli 17 smál. (31).
Frá Eskifirði gengu 4 vélbátar yfir 12
lestir og 5 minni, með samtals 36 menn.