Ægir - 01.01.1938, Page 37
Æ G I R
29
I Þýzkalandi var meðalverð ársins á öll-
um ísfiski, nema lúðu, nokkuð lægra en
árið áður.
Allir togararnir stunduðu ísfiskveiðar,
nema tveir, og var samanlagður út-
lialdstími þeirra 4072 dagar, og er þá
meðtalinn timi þeirra togara, er einnig
voru í flutningum. Sá togarinn, sem
lengst stundaði ísfiskveiðar á árinu, fór
II ferðir til útlanda og seldi fyrir 1215
£ að meðaltali í liverri ferð.
Flestar ferðir (33) fóru togararnir í
október, en árið áður í janúar (29).
Hæsta meðalsala 1937 var i október, 1625
£ og einnig í sama mánuði árið áður,
en þá var meðalsalan 1793 £.
Rækjuverksmiðjan.
Rækjuverksmiðjan á Isafirði var starf-
rækt næstum allt árið. Fyrstu þrjá mán-
uði ársins var góð rækjuveiði, stundum
ágæt. f júlí og ágúst var á stundum góður
rækjuafli í Inndjúpinu, en aðalveiði-
svæðin voru lengi vel Hestfjörður og
Mjóifjörður. Yfir allt haustið var mjög
litil veiði, og' er talið að aflabrestur þessi
stafi af óvenju beitum sjó i fjörðunum
um þetta levti árs; þ. e. a. s. síðla hausts
og framan af vetri. Seinustu mánuði árs-
ins voru rækjuveiðar stundaðar sama og
ekkert.
Rækjuaflinn á árinu varð allmikill,
því að oftast voru margir bátar að veið-
um, t. d. 9—10 vor og' sumar.
Alls liefir verið greitt fvrir nýjar rækj-
ur til bátanna kr. 71561.00 A flestum eða
öUum bátunum eru aðeins tveir menn.
Bátarnir liafa aflað fyrir um 7 þús. kr.
til jafnaðar, og liafa fiskimenirnir fengið
í sinn blut mest 3000 kr, en flestir frá
1900—2400 kr. í vinnulaun liefir verk-
smiðjan greitt alls 53650 kr. Verður ekki
annað sagt, en að það sé álitleg fjárliæð,
að greiða 124 þús. kr. til verkafólks og
sjómanna. Þvi má eklci gleyma að verk-
smiðjan er tilraunafyrirtæki, sem aðeins
iiefir starfað í lj4 ár.
Sala rækjanna liefir yfirleitt gengið vel
og eftirspurn þeirra aukist að mun. Mest
befir verið selt til Norðurlanda, aðallega
Danmerkur. Þar befir verðið hækkað úr
kr. 0.43 upp i 0.45 pr. dós. Tollurinn í
Danmörku er kr. 0.17 pr. dós, og má því
ekki vænta verulegrar verðhækkunar þar
i landi. Nokkuð liefir selzt til Þýzkalands
með heldur liærra verði en í Danmörlui.
Bezt hefir verðið verið i Englandi, síð-
ari hluta ársins, eða um 51*4 eyri dósin.
Hefir verið gerður samningur um söiu
á 300 kössum á mánuði til Englands, fyrir
áðurgreint verð. Loks liefir nokkuð verið
selt til Ameríku, en salan þangað er enn-
þá á tilraunastigi og verðið lágt, um 10—
10*4 dalur kassinn (100 dósir).
Seldar liafa verið alls á árinu rækjur
fyrir 191 þús. kr.
Hraðfrystihús og dragnótaveiði.
Dragnótaveiðin byrjaði fyrr en árið
áður og var meiri þátltaka í henni en
nokkru sinni fvrr. Allmargir bátar voru
t. d. farnir á veiðar fyrir 15. maí, en
þann dag var landhelgin opnuð fvrir
dragnótabátana fvrir Suður- og Vestur-
landi. Um það bil, er dragnótaveiðin var
levfð í landbelgi fvrir Norðurlandi, voru
um 70 bátar þar á vei'ðum, en þeim
fækkaði fljóllega, því að skyndilega dróg
úr aflanum, þótt liann væri ágætur í
fyrstu. Fyrir Suður- og Vesturlandi var
reytingsafli framan af sumri, en um mitt
sumarið veiddist afarlitið. Upp úr miðj-
um ágúst glæddist veiðin aftur, og var
víða mjög sæmileg um mánaðarmótin
ág.—sept.
Nákvæmar skýrslur liggja ekki fyrir