Ægir - 01.01.1938, Qupperneq 44
Æ G I R
3(i
um Skuldaskilasjóð frá 1935 var ekki
ætlast til að öðrum væri veitt lán úr hon-
um, en eigendum vélbáta (undir 60 smál.
að stærð) og skyldi lánunum varið til
þess að ná sa.mningum um nauðsynlegar
eftirgjafir skulda og' hagkvæmari hreyt-
ingar á lánskjörum. Nú hefir lögunum
verið hreytt þannig, að eigendum línu-
veiðagufuskipa skuli einnig veitt lán í
sama skyni. Hin samanlagða lánsupp-
hæð til línuveiðagufuskipa má ekki fara
fram úr kr. 250,000.
Lögum um fiskimálanefnd o. fl. var
breytt nokkuð, og eru helztu hreyting-
arnar þær, að ríkisstjórninni er heimilt
að greiða til Fiskimálasjóðs kr. 400.000
áirlega, af útflulningsgjaldi sjávarafurða.
Ríkisstjórninni er og* lieimilt að veita
stofnunum, félögum og einstaklingum
lán eða styrk úr Fiskimálasjóði, til þess
að koma á fót niðursuðuverksmiðjum
fyrir sjávarafurðir, til kaupa á hrað-
frystitækjum í frystihús, til hraðfrysti-
liúshygginga og að styrkja félag sjó-
manna, verkamanna og annara, til þess
að kauþa, í tilraunaskyni, togara með
nýtízku vinnutækjum, og má styrkurinn
nema allt að 25% af kostnaðarverði,
enda leggi eigendur fram 15—20% af
verðinu.
Umbætur
á sviði fiskveiða og siglinga liafa verið
nokkrar á árinu. Við liafnargerðir og'
lendingabætur var unnið sem liér segir:
Hjallasandur. Unnið var að lengingu
ijryg'gjunnar og til þess varið kr. 9000,00.
Ólafsuik. Unnið var við háða garðana.
Norðurgarðurinn var lengdur um 11,3
m. og bryggjan um 36,5 m. Kostnaður
við þesi verk varð ca. kr. 15700,00.
Flateyri. Unnið var að framlengingu
sjóvarnargarðs fyrir Eyrina. Steyptur
var 144 m. langur nvr garður, og til þess
varið kr. 4500,00.
Skagaströnd. Bryggja sú, sem skemmd-
ist í ofviðri haustið 1936, var endurbyggð
og auk þess gerðar ýmsar umbætur á
hafnargerðinni þar. Kostnaður við þessi
verk hefir orðið ca. 52 þús. kr.
Sauðárkrókur. Þar var byrjað á liafn-
argerð síðastliðið vor og' fullgerðir ca.
140 m. af liafnargarðinum. Var unnið
fyrir ca. 340—350 þús. kr.
ilofsós. Bryggja sú, sem gerð var 1936,
var lengd um 5 m. og er liún nú um 50
m. á lengd. Auk þess var gert timbur-
plan til síldarsöltunar. Kostnaður við
þetta liefir orðið kr. 50000,00.
Siglufjörður. Unnið hefir verið þar að
liafnargerð í framhaldi þess, sem gert
var síðastliðið ár, og er kjarni hafnar-
garðsins nú fullgerður.
Ólafsfjörður. Bátahryggjan var lengd
um 14,3 m. og varið til þess kr. 20400,00.
Þórshöfn. Þar var byggður skjólgarð-
ur, ca. 80 m. langur. Kostnaður varð kr.
16300,00.
Unaós (Stapavik). Þar var unnið að
endurbyggingu dráttarhrautar, en verk-
inu ekki lokið Áætlunaruppliæðin var
kr. 13000,00.
Gerðar í Garði. Þar var unnið að
bryggjugerð, lirednsingu 'lendingarinnar
og' fvllingu milli brj'ggjunnar og sjóvarn-
argarðsins. Unnið liefir verið fyrir ca. kr.
9000,00.
Vestmannaegjar. Unnið liefir verið að
viðgerð Eiðisins, kamburinn liækkaður
og' stórgrýti hlaðið utan á hann. Kostn-
aður rúm 16 þús. kr.
Reykjavík. Þar voru gerðar ýmsar um-
hætur á liöfninni og lialdið áfram að
lengja Ægisgarðinn.