Ægir - 15.12.1955, Side 4
322
Æ GI R
pr. kg í kr. 1.98 að meðaltali. Karfamagn
það, sem á land barst, var aftur á móti
með minnsta móti, enda var afli mjög far-
inn að tregðast á „Dohrn-banka" og hafði
framboð almennt dregizt verulega saman.
Það mun og hafa haft áhrif á karfafram-
boðið, að verðið var alllágt framan af mán-
uðinum, og munu þau skip, er þá voru á
veiðum og ætluðu sér að selja síðari hluta
mánaðarins, ekki hafa sótzt mjög eftir
honum.
Hér fylgir á eftir tafla, er sýnir magn,
heildarverð og meðalverð þeirra helztu
fisktegunda, sem landað var í þýzkum
höfnum í nóvember, og samanburðartölur
yfir nóvemberlandanir 1953 og 1954.
Þorskur Ufsi Karfi
Magn Br.verð Meðal- Magn Br.verð Meðal- Magn Br.verð Meðal
kg kr. verð kg kr. verð kg kr. verð
Nóv.’ðB 2.474.002 4.338.326 1.75 771.723 1.761.814 2.28 433.733 858.229 1.98
Nóv.’54 1.050.699 2.235.286 2.13 373.667 920.195 2.46 787.018 1.663.994 2.11
Nóv.’53 3.155.452 6.034.535 1.91 237.600 420.231 1.77 176.015 367.826 2.09
Þess skal getið, að í nóvembertölum
1953 eru taldar með sex söluferðir til Bret-
lands
AUSTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
Haustvertíð hefur verið góð eystra, svo
og aflabrögð, einkum sunnantil.
Hornafjörður. Einn bátur hefur róið
haustmánuðina og aflað sæmilega.
Djúpivogur. Lítið hefur verið stundaður
sjór í haust frá Djúpavogi. Ein trilla reri,
er gaf, og aflaði allvel. „Víðir“ SU 95 reri
einnig seinni hluta haustsins og fékk 4-5
lestir í róðri.
Stöðvarfjörður. Þrír opnir vélbátar
stunduðu veiðar fram eftir október og öfl-
uðu 2-4 skp. í róðri. „Vörður“ stundaði
veiðar alla smástrauma; fór 16 sjóferðir
í október og aflaði 3-8 lestir í hverri.
Fáskrúðsfjörður. Þaðan reru 6 þilfars-
bátar fram eftir hausti og öfluðu yfirleitt
sæmilega, einkum þeir smærri, eða 2-4
lestir í róðri. M/b „Stefán Árnason" hef-
ur aflað 3-6 lestir í sjóferð. — Mikið hef-
ur verið hér um karfalandanir togara, og
hefur það dregið úr sjósókn smærri báta.
Reyðarfjörður. Þrjár trillur af Syðri-
byggð fjarðarins hafa róið og aflað vel eða
2-4 skp. í róðri.
Eskifjörður. M/b „Björg“ hefur róið að
staðaldri í haust og aflað um 5 lestir í
róðri til jafnaðar. „Víðir“ fór einn túr á
útilegu, en afli var tregur. Opnir vélbátar
hafa sáralítið stundað veiðar í haust. —
„Austfirðingur“ fiskaði í ís.
Norðfjörður. Þaðan stunduðu veiðar 11
þilfarsbátar í október og 5 í nóvember.
Afli var misjafn, en allgóður á köflum,
allt að 9 lestum í róðri, og var þá róið í
„Gullkistuna“. Á grunnmiðum öfluðust
jafnaðarlega 2-4 skp. í róðri.
Seyðisfjörður. Engin sjósókn.
Borgarfjörður. Tveir opnir bátar stund-
uðu veiðar með færi í október og öfluðu
sæmilega, er gaf, eða allt að 2 skp. í róðri.
Vopnafjörður. Þrír þilfarsbátar og tvær
trillur stunduðu veiðar í október og öfluðu
allsæmilega, þegar á sjó gaf.
Bakkafjörður. Þrír opnir bátar reru af
og til; afli var viðunandi, en gæftir slæmar.
VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
(Október og nóvember)
Steingrímsfjörður. Drangsnesbáturinn
„Barði“ byrjaði veiðar um 10. okt. Fékk
hann til að byrja með allgóðan afla á
grunnmiðum, um 5 lestir í sjóferð, en