Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1955, Síða 9

Ægir - 15.12.1955, Síða 9
ÆGIR 327 Jón Forseti á leið norður á síldveiðar 1908. Skipstjóri Halldór Kr. Þorsteinsson. að selja ís til skipa, en »innig tÓKu þau matvæli til geymslu. Vandkvæði voru á því að alla síldarinn- ar, meðan eingöngu var stuðst við land- nótaveiðina. Því var það, að ísfélagið gerði út gamlan, enskan hafnsögubát á reknet árið 1899 í Faxaflóa, sem það leigði til veiðanna. Var báturinn útbúinn skozkum netum. Formaðurinn, Benedikt Guð- brandsson, hafði áður stundað rekneta- veiðar við Skotland. Tilraunin tókst svo vel, að Tryggvi Gunnarsson, helzti ráða- maður ísfélagsins, gekkst fyrir stofnun Reknetjafélagsins við Faxaflóa árið 1900. Keypti félagið eigið seglskip til veiðanna. Varð Geir Sigurðsson skipstjóri á skipi félagsins. Stundaði hann upp frá þvi rek- netaveiðar í fjölda mörg ár við ágætan orðstír. Höfðu íshúsin eins og hraðfrystihúsin síðar ómetanlega þýðingu fyrir fiskveiðar landsmanna. Norðmenn höfðu árið 1897 tekið að veiða síld með reknetum fyrir alvöru við Noregsstrendur. Tóku þeir þessa veiðiað- ferð eftir Hollendingum og Skotum, sem höfðu notað hana með góðum árangri um langan aldur. Gerðu Norðmenn fyrstu tilraun til síld- veiða með reknetum hér við land árið 1899. Við Austurland fékkst engin veiði, en við Norðurland nokkur afli á fáum dögum í september. Hófst nú reknetaveiði við Norðurland, og var síldin, sem þar veidd- ist síðari hluta sumars, sérlega vel fallin til söltunar, og var tekin fram yfir aðra síld á markaðnum í Svíþjóð og Þýzkalandi. Árið 1903 er afli Norðmanna í reknet hér við land kominn upp í 43 þúsund tunn- ur og árið eftir komst aflinn upp í 80 þús- und tunnur. Bræðurnir Sveinn og Jón Einarssynir á Raufarhöfn urðu fyrstir Islendinga til þess að hefja reknetaveiðar fyrir Norður- landi sumarið 1901. Keyptu þeir smáskútu frá Noregi í bessu skyni. Gerðu þeir hana Thor Jensen.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.