Ægir - 15.12.1955, Blaðsíða 14
332
Æ GIR
Sólbakka og Raufarhöfn árið 1935. Það ár
var hafin vinnsla á karfa hjá S.R. í all-
stórum stíl. Var unnið úr karfanum lýsi og
mjöl og vítamínlýsi úr lifrinni. Átti Þórð-
ÞormóSur
Eyjólfsson.
ur Þorbjarnarson fiskiðnfræðingur mikinn
þátt í því, að þessi vinnsla var hafin.
Kæliþró til síldargeymslu var byggð á
Siglufirði árið 1937 samkvæmt tillögu
Gísla Halldórssonar verkfræðings, þáver-
andi framkvæmdastjóra verksmiðjanna,
en ekki hafa þær tilraunir, sem gerðar
hafa verið til geymslu á kældri síld í
þrónni, tekizt vel.
Bjarni Snæbjörnsson flutti 1937 frum-
varp á Alþingi um nýja 5.000 mála síldar-
verksmiðju á Raufarhöfn, sem náði sam-
þykkt með þeirri breytingu, að helmingur
afkastaaukningarinnar skyldi koma á
Siglufjörð. Afköst S.R.N.-verksmiðjunn-
ar voru aukin um 2.500 mál fyrir síldar-
vertíð 1938 samkvæmt þessari heimild,
sem Haraldur Guðmundsson atvinnumála-
ráðherra ákvað að nota. Hafði Jón Gunn-
arsson verkfræðingur, framkvæmdastjóri
verksmiðjanna, yfirstjórn byggingafram-
kvæmdanna með höndum, eins og endra-
nær meðan hann var framkvæmdastjóri
verksmiðjanna.
Á Alþingi 1940 var samþykkt frumvarp
Ólafs Thors atvinnumálaráðherra um
heimild til stækkunar Raufarhafnarverk-
smiðjunnar upp í 5.000 mála afköst á
sólarhring og stækkun Dr. Pauls-verk-
smiðjunnar um 2.500 mál. Áður höfðu
miðstjórnir Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins lýst fylgi við þessar fram-
kvæmdir.
Þrátt fyrir það, að framkvæmdastjóri
og stjórn verksmiðjanna sækti það mjög
fast, að notuð yrði heimild Alþingis til
þess að reisa hina nýju síldarverksmiðju
á Raufarhöfn, varð á því nokkur dráttur
vegna þess, að töf varð á því að lán feng-
ist til framkvæmda. Einnig skorti inn-
flutningsleyfi á nauðsynlegum tækjum og
byggingarefni.
Sumarið 1939 voru framkvæmdir því
ekki lengra komnar en svo, að fest höfðu
verið kaup á lóðum, verksmiðjuhúsið ver-
ið reist og komið fyrir í því annarri aðal-
aflvélinni ásamt rafal, en allar helztu síld-
arvinnsluvélar, geymslur, löndunartæki,
þrær og fleira vantaði.
Hinn 21. ágúst 1939 fóru þeir Ásgeir
Ásgeirsson bankastjóri og Jón Gunnars-
son framkvæmdastjóri utan samkvæmt ósk
ríkisstjórnarinnar til þess að freista að fá
lán til byggingar Raufarhafnarverksmiðj-
unnar, og jafnvel til 2.500 mála stækkunar
á Dr. Pauls-ríkisverksmiðjunni á Siglu-
firði. Ennfremur skyldu þeir, ef lán feng-
ist, festa kaup á vélum og öðru, sem nauð-
synlegt væri til þessara bygginga.
Ferðin tókst mjög giftusamlega, þrátt
fyrir ýmsa örðugleika, sem við var að etja,
m. a. sökum þess, að heimsstyrjöldin síðari
brauzt út meðan á ferðinni stóð. Lán fékkst
með góðum kjörum fyrir verulegum hluta