Ægir - 15.12.1955, Page 18
ÆGÍR
336
ur bygginganefndarinnar var Þórður Run-
ólfsson vélfræðingur.
Voru nýju verksmiðjurnar á Siglufirði
Síldarsöltun á Raufarhöfn.
og Skagaströnd síðan byggðar á árunum
1945—47.
Það var nýlunda við byggingu þessara
verksmiðja, að mestur hluti vinnsluvél-
anna var smíðaður innanlands af Vél-
smiðjunni Héðni, og eru sjóðarar, pressur
og þurrkarar af stærri gerð en áður hafði
tíðkazt.
Eftir byggingu þessara nýju verksmiðja
eru heildarafköst Síldarverksmiðja ríkis-
ins komin í um 35.000 mál á sólarhring,
en afköst annarra síldarverksmiðja á
Norður- og Austurlandi nema um 40.000
málum á sólarhring.
Hinn 27. marz 1947 hrundi nýreist mjöl-
hús verksmiðjanna, ein stærsta bygging
á landinu. Það var síðan endurreist á nýrri
grind og með nýju lagi.
Eins og allir vita hefur síldveiðin fyrir
Norðurlandi brugðizt síðan 1945 eða í sam-
fleytt 10 ár, og hafa hinar nýju síldarverk-
smiðjur því ekki orðið að því gagni, sem
ætlað var. Þó kom nýja síldarverksmiðjan
á Siglufirði að miklum notum við vinnslu
Hvalfjarðarsíldarinnar 1947 til 1948. Á
vegum Síldarverksmiðja ríkisins voru flutt
norður til vinnslu í verksmiðjunum nærri
ein milljón mála síldar árin 1947 og 1948,
og fengust úr þessari síld útflutningsverð-
mæti, sem námu um 70 milljónum króna.
Stjórn S.R. beitti sér fyrir því að koma
upp hraðfrystihúsi á Siglufirði á vegum
verksmiðjanna til þess að fá verksmiðjun-
um aukin verkefni og til að auka atvinnu
á staðnum. Veitti Ólafur Thors atvinnu-
málaráðherra leyfi til framkvæmda.
Hóf hraðfrystihúsið vinnslu hinn 27. okt.
1953. Hefur starfsemi þess orðið til þess
að auka mjög atvinnu á Siglufirði og gert
kleift að leggja þar á land að staðaldri
afla tveggja togara bæjarins.
Hefur stjórn S.R. annazt framkvæmda-
stjórn togaranna síðan í marzlok 1953 í
umboði bæjarstjórnar Siglufjarðar. Hefur
Sigurður Jónsson, viðskiptaframkvæmda-
stjóri S.R., annazt framkvæmdastjórn tog-
aranna og hraðfrystihússins, en Vilhjálm-
ur Guðmundsson verkfræðingur, tæknileg-
ur framkvæmdastjóri S.R., haft með hönd-
um tæknilegar framkvæmdir, yfirstjórn
vinnu í verksmiðjunum og hraðfrystihús-
inu.
Alls hafa S.R. frá því að þær hófu starf-
semi sína árið 1930 tekið á móti um 9
milljónum mála síldar, og myndu afurðir
úr því magni nema með núverandi verð-
lagi á lýsi og mjöli um 1150 milljónum
króna.
Auk þess hafa verksmiðjurnar tekið á
móti:
38.298 tonnum karfa,
48.865 málum ufsa,
15.000 tonnum fiskúrgangs,
6.611 tonnum af nýjum fiski og síld
til frystingar á 18 mánuðum.
Formenn stjórnar S.R. hafa verið:
Þormóður Eyjólfsson ræðismaður í 11
ár, Jón L. Þórðarson í 1 ár, Finnur Jóns-
son, fyrrum ráðherra, í 2 ár og Sveinn
Benediktsson í 11 ár.
Stjórnin er nú skipuð 5 mönnum, kosn-
um hlutfallskosningum af Alþingi, og eru
það: Jón Kjartansson bæjarstjóri, Karl
Kristjánsson alþingismaður, Sigurður
Ágústsson alþingismaður, Sveinn Bene-