Ægir - 15.12.1955, Blaðsíða 19
ÆGIR
337
*
f
I
I
f
M/s Helga RE /0. Skipstjóri Ármann Friðriksson.
diktsson framkvæmdastjóri og Þóroddur
Guðmundsson bæjarfulltrúi.
Framkvæmdast j órar verksmið j anna
hafa verið:
Óskar Ottesen í 5 ár, Gísli Halldórsson
í 2 ár, Jón Gunnarsson í 8 ár, Magnús
Blöndal í 1 ár, Hilmar Kristjónsson í 1 ár
og Sigurður Jónsson í 8 ár. Þá var Hilmar
Kristjónsson tæknilegur framkvæmda-
stjóri verksmiðjanna í 1 ár og Vilhjálmur
Guðmundsson, núverandi tæknilegur fram-
kvæmdastjóri, hefur gegnt því starfi nærri
7 ár.
Meðalafli af bræðslusíld hjá viðskipta-
skipum S.R. varð mestur árið 1944 og nam
þá 9.844 málum. S.l. ár var meðalaflinn
hins vegar aðeins um 700 mál á skip.
t
M/s Víðir SU 175 við bryggju Sk
á Siglufirði. Verið er að losa bát-
inn með löndunarkrana. Skipstjóri
Sigurður Magnússon.
Síldarverksmiðjur ríkisins starfrækja
eigið vélaverkstæði á Siglufirði og vinna
þar 10—15 manns. Forstöðumaður verk-
stæðisins er Þórður Guðmundsson vél-
smiður.
Þegar allar 7 Síldarverksmiðjur ríkis-
ins eru starfandi vinna við þær 500—600
manns, en hin síðari ár hafa ekki verið
ráðnir nema um 250 menn til starfa í verk-
smiðjunum vegna aflabrestsins. I hrað-
frystihúsi S.R. vinna um 100 manns. Á
þeim skipum, sem eru í viðskiptum við
S.R. um síldartímann, starfa um 1500 sjó-
menn. Auk þess eru um 70 manns á togur-
um bæjarútgerðar Siglufjarðar, en S.R.
hafa útgerð þeirra með höndum í umboði
bæjarins, eins og áður segir.
Frá því 1930 hafa Síldarverksmiðjur
ríkisins selt frá 1.000 upp í 9.000 tonn af
síldar- og fiskimjöli árlega til íslenzkra
bænda. Hafa S.R. haldið eftir mjöli til
innanlandsnota frá því þær hófu starfsemi
sína, enda er svo ákveðið í verksmiðjulög-
unum. Þarf mjölið að vera pantað fyrir
septemberlok ár hvert.
Síðustu 10 árin hefur íslendinga ekki
vantað síldarverksmiðjur, heldur síldina
til þess að vinna í verksmiðjunum.
Síldveiðin hefur brugðizt svo hrapar-