Ægir - 15.12.1955, Page 25
ÆGIR
343
standa á V, skera sig úr sem sumargots-
síldar. í ágúst finnum við 60 síldar á kyn-
þroskastigi IV. Þar er greinilega að ræða
um vorgotssíld eftir hryggjarliðafjöldan-
um að dæma. Það sama á við um III (424
síldar) og að nokkru leyti um II (9 síldar),
en VII virðist að langmestu leyti vera
sumargotssíld.
Hryggjarliðafjöldinn í allri Norður-
landssíld hefur farið síhækkandi undan-
farin ár, en nú (1955) var hann nákvæm-
lega sá sami eins og í fyrra (1954) :
57.183.
Þess hefur verið getið fyrr, að í sýnis-
hornunum 30 og 32 var langmest af sumar-
gotssíld, og í góðu samræmi við það var
hryggjarliðatalan mjög lág, eða hlutfalls-
lega 57.000 (30) og 56.950 (32).
5. Merkingar. Eins og undanfarin sum-
ur var vélbáturinn ,,Auðbjörg“ frá Norð-
firði leigður til merkinganna, og stjórnaði
Jakob Jakobsson þeim nú sem fyrr. Á 3.
töflu er yfirlit um allar síldarmerkingar,
sem gerðar hafa verið á íslandi fram til
þessa (1948—1955), en það verða samtals
70.264 fiskar, eins og taflan sýnir. Af þeim
voru 57.373 síldar merktar við N-(og NA-)
land, allar með innri merkjum. Síðastliðið
sumar var 9.241 síld merkt þar, en merk-
ingarstaðir voru eins og sýnt er á 3. mynd.
Merkingarnar við Norðurland urðu óvenju-
2. mynd. Lengdardreifing sildar 1955:
----Öll Norðurlandssíld.
.... Norðurlandssild í ágúst.
----Ísafjarðarsíldin (nr. 30) 18. júlí.
---- Reyðarfjarðarsíldin (nr. 32) 9.—11. ágúst.