Ægir - 15.12.1955, Qupperneq 27
ÆGIR
345
lega erfiðar vegna þess hve síldin stóð
djúpt.
3. tafla. Fjöldi merktra sílda við
ísland 19 U8—195Jj.
Merki Ár N-land SV-land A-land Samt.
Innvortis 1948—54 — 1955 48.132 9.241 8.763 331 2491 56.895 12.063
Samtals 57.373 9.094 2.491 68.958
Útvortis 1948-54 1955 — 1.306 — 1.306
Samtals — 1.306 — 1.306
Samtals 1948-55 57.373 10.400 2.491 70.264
Með því að fiskurinn styttist dálítið,
þegar hann stirðnar eftir dauðann, er
óhægt um vik að bera saman lengdina á
síldinni, sem mæld var lifandi um leið og
hún var merkt, og þeirri, sem kom úr skip-
unum og mæld var dauð í landi. Hins vegar
er auðvelt að bera saman stærð merktu
síldarinnar frá ári til árs, eins og gert er
í 4. töflu, sem nær aðeins yfir Norðurlands-
síld. Taflan sýnir, að lengdin hefur verið
svipuð þessi þrjú ár, sem taflan nær til,
en þó er aðaltoppurinn á 36 cm 1953, en
á 37 cm bæði hin árin. Eftirtektavert er
cinnig, að nokkuð bar á 31 cm síld 1953 og
mikið á 33 cm síld 1954, og er hvort tveggja
tvímælalaust af íslenzkum uppruna. Eink-
um bar mikið á ungsíld sumarið 1954, þeg-
ar aflinn var með allra lélegasta móti.
Hreyfing toppanna upp á við frá ári til árs
stafar sjálfsagt af ársvextinum, þ. e. það
24° 20° 16°
3. mynd. Merkingarstaðir 1955.