Ægir - 15.01.1965, Qupperneq 7
Æ G I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
fltntsbóhasafnö
á flkureyn
58. árg.
Reykjavík 15. janúar 1965
Nr. 1
lítgerð og aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
Desember 1964.
Vestmannaeyjar: Þaðan stunduðu 20
bátar veiðar í mánuðinum; varð afli þeirra
alls 383 lestir í 113 sjóferðum og skiptist
þannig:
14 bátar m. botnvörpu, afli 252 lestir í 70 róðrum
5 bátar með línu, afli 119 lestir í 39 róðrum
1 bátur með handfæri, afli 12 lestir í 4 róðrum
Auk þess réru 6 trillur og öfluðu alls
32 lestir á handfæri.
Stokkseyri, Eyrarbakki, Þorlákshöfn:
Þaðan var ekkert róið á tímabilinu.
Grindavík: Þaðan réru 10 bátar á tíma-
bilinu, þar af voru 7 bátar með línu, 1
með botnvörpu og 2 með handfæri. Aflinn
varð alls 319 lestir, þar af var línuafli 286
lestir, en afli í troll 20 lestir og afli á
handfæri 13 lestir.
Sandgerði: Þaðan réru 12 bátar, þar af
voru 11 með línu, en 1 með troll. Gæftir
voru fremur stirðar og afli yfirleitt rýr.
Aflinn á tímabilinu varð 349 lestir í 95
i’óðrum, þar af var afli í troll 9 lestir í
1 veiðiferð. Aflahæstu bátar á tímabilinu
voru:
Von, með 52 lestir í 11 róðrum.
Jón Oddsson, með 43 lestir í 9 róðrum.
Keflavík: Þaðan réru 18 bátar með línu,
fóru þeir alls 130 róðra á tímabilinu og
Öfluðu 511 lestir. Tíðarfar var mjög óhag-
stætt, einkum síðari hluta mánaðarins.
Vogar: Þaðan réru 2 bátar með línu,
gæftir voru stirðar og varð aflinn alls 49
lestir í 14 róðrum.
Hafnarfjörður: Þaðan stunduðu 10 bátar
veiðar á tímabilinu, þar af voru 7 bátar
með botnvörpu, 2 með línu og 1 með hand-
færi. Aflinn varð alls 211 lestir, þar af
veiddust 117 lestir á línu, og 81 í botn-
vörpu en 12 á færi. Gæftir voru mjög
erfiðar.
Reykjavík: Þaðan réru 10 bátar, þar af
voru 2 með handfæri, en 8 með línu. Gæftir
voru slæmar. Afli var yfirleitt 3-6 lestir
í róðri hjá línubátum, en afli færabáta var
mjög rýr. Aflinn á tímabilinu varð alls
um 240 lestir.
Akranes: Þaðan réru 7 bátar, þar af
voru 6 með línu, en 1 með botnvörpu. Afl-
inn.á tímabilinu varð 244 lestir í 59 róðr-
um, þar af var afli í botnvörpu 20 lestir
í 6 róðrum. Aflahæsti línubátur var m.s.
Haförn með 60 lestir í 8 róðrum. Gæftir
voru mjög slæmar.
Rif: Þaðan réri einn bátur, m.s. Hamar
með línu í desember, aflaði hann 96 lestir
í 12 róðrum.
Ólafsvík: Þaðan réru 2 bátar með línu,
fóru þeir 18 róðra og öfluðu 52 lestir.
Grundarfjörður: Þaðan var ekkert róið
á tímabilinu.
Stykkishólmur: Þaðan réru 7 bátar með
línu (stærð 11-70 rúmlestir). Aflinn á
tímabilinu varð 172 lestir í 39 róðrum,
aflahæsti báturinn var Þórnes (70 rúml.)
með 52 lestir í 9 róðrum.