Ægir

Árgangur

Ægir - 15.01.1965, Síða 8

Ægir - 15.01.1965, Síða 8
2 ÆGIR VESTFIRÐINGAFJ ÓRÐUN GUR í desember 1964 Aflabrögð í fjórðungnum voru fádæma léleg í desembermánuði. Hjálpast þar allt að, rysjótt tíðarfar, stopular gæftir og al- gjört aflaleysi. Fyrri hluta mánaðarins sóttu margir bátar, einkanlega frá syðri Vestfjörðunum, suður í Kolluál og fengu þar ágætan afla. Er aflinn því mun betri á syðri fjörðunum heldur en í verstöðvun- um við Djúp. Vestfjarðarbátar stunduðu nú allir veiðar með línu nema tveir bátar, sem réru með þorskanet og 5 bátar, sem stunduðu síldveiðar fyrir Austurlandi. Heildaraflinn í fjórðungnum varð nú 2.399 lestir, en var á sama tíma í fyrra 3.520 lestir, enda var þá ágætur afli í desember. Aflahæsti báturinn í desember er Guðm. á Sveinseyri með 111,1 lest í 13 róðrum, en í fyrra var Sæborg frá Patreksfirði aflahæst með 160,5 lestir í 16 róðrum. Þessi haustvertíð er ein allra lélegasta haustvertíð um nokkuð langt árabil. Afla- hæsti báturinn nú er Sæborg frá Patreks- firði með 336 lestir í 52 róðrum, en í fyrra var Andri frá Bíldudal aflahæstur með 398 lestir í 62 róðrum og árið 1962 Sigur- fari frá Patreksfirði með 366 lestir í 48 róðrum. Þeir bátar, sem stunduðu rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi, hættu allir veiðum í lok nóvember, en þá var eftir að veiða 43 lestir af því aflamagni, sem leyft hefir verið. Er gert ráð fyrir að rækjuveiðarnar hefjist að nýju í byrjun febrúar. Bílddæl- ingar stunduðu hins vegar rækjuveiðarnar í desember, og var búið að veiða 50 lestir um áramótin, en það er þriðjungur þess afla, sem leyfilegt er að veiða í Arnarfirði. Afli í einstökum verstöðvum: Patreksfj örSur: Sæborg .......... 101,6 lestir í 13 róðrum Dofri ........... 101,3 — - 12 — Seley ........... 84,0 — - 13 — Tálknafj öröur: Guðm. á Sveinseyri 111,1 lestir í 13 róðrum Sæúlfur 94,0 — - 12 — Bíldudalur: Andri 90,8 — - 14 — Þingeyri: Framnes 99,7 — - 15 — Fjölnir 92,0 — - 14 — Þorgrímur 70,2 — - 13 — Flateyri: Hilmir II 71,8 — - 13 — Hinrik Guðmundss. 70,9 — - 13 — Rán 68,0 — - 11 — Suðureyri: Friðb. Guðmundss. 73,2 — - 13 — Sif 70,1 — - 13 — Hávarður 52,3 — - 12 — Stefnir 34,1 — - 9 Gyllir 15,0 — - 4 — Bolungavík: Hugrún 85,7 — - 15 — Einar Hálfdáns . . 85,1 — - 16 — Þorl. Ingimundars. 68,9 — - 14 — Heiðrún 62,5 — - 14 — Guðrún 40j8 — - 14 Húni 26,2 — - 11 — Bergrún (net) .. 10,8 — - 13 — Hnífsdalur: Mímir 57,9 — - 11 flPáll Pálsson 45,8 — - 12 — Isafjöröur: Guðbjörg 84,1 — - 14 — Guðbj Kristján ÍS 280 73,6 — - 14 Straumnes 68,6 — - 12 ___ Hrönn 61,9 — - 12 Guðbj Kristján IS 268 61,8 — - 13 Gunnhildur 50,7 — - 11 Víkingur II 43,9 — - 11 Guðný 41,2 — - 11 Gunnvör (net) ., 8,9 — - 11

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.