Ægir

Volume

Ægir - 15.01.1965, Page 10

Ægir - 15.01.1965, Page 10
4 ÆGIR aflann í sig og sigldi með hann. Önnur út- gerð var ekki. En einn bátur fór til Homa- fjarðar og réri þaðan með línu. Lítilsháttar barst af síld til bræðslu framan af mánuð- inum. Af Mjóafirði og fjörðunum fyrir norðan Seyðisfjörð var ekkert stundaður sjór í mánuðinum, og engin síld barst þar á land. TOGARARNIR í desembermánuði. I desember voru togararnir mest að veiðum úti af Vestfjörðum. Einnig voru nokkur skip úti af Jökli á Eldeyjarbanka og víðar fyrir SV- og S-landi. Afli var mjög tregur, sem fyrr. Veður voru fremur óhagstæð. Alls seldu 29 skip afla sinn á erlendum markaði í mánuðinum, þar af 13 í Vestur- Þýzkalandi samtals 1721 lest fyrir 14.766,4 þús. kr. Af þessu magni voru 288.9 lestir af síld sem seldust á 1.223,6 þús. kr. í Bretlandi seldu 16 skip samtals 1731.6 lestir fyrir 19.085,4 þús. kr., auk Narfa, sem landaði 176.7 lestum af frystum fiski á 1.343,8 þús. kr. cif. ÍSFISKLANDANIR BÁTA. I Þýzkalandi seldu 5 bátar afla sinn samtals 234.7 lestir á 1.953,9 þús. kr. þar af voru 84.3 lestir síld á 420,3 þús kr. I Bretlandi seldi einn bátur 19.8 lestir á 184.9 þús. kr., þar af voru 9.0 lestir af frystum fiski á 70.1 þús. kr. Sala þessi fór fram í október en skýrslur bárust eigi fyrr. lítgerdarmemn! STIJART Nylon síldamætur framleiddar af J. W. STIJART LTD., MUSSELBURGH, SKOTLANDI, reynast afburðavel og eru endingargóðar. Umboðsmenn: Kristján Ó. Skagfjörð h.f.9 Reykjavík — Sími 24120

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.