Ægir - 15.01.1965, Qupperneq 10
4
ÆGIR
aflann í sig og sigldi með hann. Önnur út-
gerð var ekki. En einn bátur fór til Homa-
fjarðar og réri þaðan með línu. Lítilsháttar
barst af síld til bræðslu framan af mánuð-
inum.
Af Mjóafirði og fjörðunum fyrir norðan
Seyðisfjörð var ekkert stundaður sjór í
mánuðinum, og engin síld barst þar á land.
TOGARARNIR
í desembermánuði.
I desember voru togararnir mest að
veiðum úti af Vestfjörðum. Einnig voru
nokkur skip úti af Jökli á Eldeyjarbanka
og víðar fyrir SV- og S-landi. Afli var
mjög tregur, sem fyrr. Veður voru fremur
óhagstæð.
Alls seldu 29 skip afla sinn á erlendum
markaði í mánuðinum, þar af 13 í Vestur-
Þýzkalandi samtals 1721 lest fyrir 14.766,4
þús. kr. Af þessu magni voru 288.9 lestir
af síld sem seldust á 1.223,6 þús. kr.
í Bretlandi seldu 16 skip samtals 1731.6
lestir fyrir 19.085,4 þús. kr., auk Narfa,
sem landaði 176.7 lestum af frystum fiski
á 1.343,8 þús. kr. cif.
ÍSFISKLANDANIR BÁTA.
I Þýzkalandi seldu 5 bátar afla sinn
samtals 234.7 lestir á 1.953,9 þús. kr. þar
af voru 84.3 lestir síld á 420,3 þús kr. I
Bretlandi seldi einn bátur 19.8 lestir á
184.9 þús. kr., þar af voru 9.0 lestir af
frystum fiski á 70.1 þús. kr. Sala þessi fór
fram í október en skýrslur bárust eigi fyrr.
lítgerdarmemn!
STIJART
Nylon síldamætur framleiddar af
J. W. STIJART LTD.,
MUSSELBURGH, SKOTLANDI,
reynast afburðavel og eru endingargóðar.
Umboðsmenn:
Kristján Ó. Skagfjörð h.f.9
Reykjavík — Sími 24120