Ægir - 01.02.1965, Side 8
34
ÆGIR
samkomulagi við fulltrúa sjómanna og út-
gerðarmanna.
L.I.Ú. mælti með sjóðstofnuninni og var
hún síðan samþykkt af fulltrúum allra
aðila í Verðlagsráði sjávarútvegsins um
leið og bræðslusíldarverðið var ákveðið
hinn 12. júní.
Tilgangur sjóðsins var sá að taka þátt í
kostnaði síldveiðiskipanna við siglingu
þeirra til fjarliggjandi verksmiðja, innan
sama verðlagssvæðis, og hvetja þannig til
þessara siglinga, þegar svo stæði á, að
veruleg löndunarbið væri hjá nærliggjandi
verksmiðjum og þrær þeirra fullar eða
að fyllast.
Tillag í sjóðinn var ákveðið kr. 3.00 á
hvert landað mál bræðslusíldar.
Úr sjóðnum voru greiddar kr. 10.00 á
hvert mál bræðslusíldar, þegar svo stóð á
sem reglurnar sögðu til um og auk þess
greiddu þær verksmiðjur, sem tóku á móti
þessari bræðslusíld kr. 6.00 á hvert mál.
Svo að alls nam flutningsstyrkurinn kr.
16.00 á málið.
Þrátt fyrir þetta sigldu veiðiskipin ekki
með meira magn af austurmiðum til fjar-
liggjandi stöðva heldur en um 356.000 mál
og tunnur. Þar af var flutningsstyrkur
greiddur á um 184.000 mál. Eftirstöðvar
sjóðsins, að frádregnum kostnaði, nema um
kr. 6.250.000 og skiptast þær á skipin í
hlutfalli við tillög hvers fyrir sig.
Um tilhögun sjóðsins má lesa nánar í
Lögbirtingablaðinu nr. 79, 25. júní 1964
og í 12. tbl. Ægis, hinn 1. júlí 1964.
Brœfislusíldarverð.
Bræðslusíldarverðið var ákveðið kr.
182.00 fyrir málið. Auk þess greiddu síld-
arverksmiðjurnar kr. 3.00 á hvert móttekið
mál bræðslusíldar í flutningasjóð þann,
sem um getur hér að framan, í sambandi
við flutninga bræðslusíldar.
Síldarverksmiðjur ríkisins sendu út svo-
hljóðandi tilkvnningu 20. júní 1964:
„Síldarverksmiðjur ríkisins hafa ákveð-
ið að kaupa bræðslusíld föstu verði í sumar
á krónur 182.00 hvert mál síldar 150 lítra.
Verðið er miðað við að síldin sé komin
í löndunartæki verksmiðjanna eða um-
hleðslutæki sérstakra síldarflutningaskipa,
er flytja síldina til fjarliggjandi innlendra
verksmiðja.
Jafnframt hefur stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins ákveðið, samkvæmt heim-
ild sjávarútvegsmálaráðherra, að taka við
bræðslusíld til vinnslu af útgerðarmönnum
eða útgerðarfélögum, sem þess óska, að því
tilskyldu, að aðalskrifstofu Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði hafi borizt til-
kynning þar um eigi síðar en 27. þessa
mánaðar.
Fá þá þeir, sem leggja síldina inn til
vinnslu, greitt óafturkræft 85% af áætlun-
arverðinu, krónum 182.00, þ.e. kr. 154.70
á hvert mál við afhendingu síldarinnar og
endanlegt verð síðar, ef um viðbót verður
að ræða, þegar reikningar Síldarverk-
smiðja ríkisins fyrir árið 1964 hafa verið
gerðir upp.
Þeim, er leggja síldina inn til vinnslu,
skal greitt söluverð afurða þeirrar
bræðslusíldar, sem tekin er til vinnslu, að
frádregnum venjulegum rekstrarkostnaði,
þar á meðal vöxtum af stofnkostnaði og
ennfremur að frádregnum fyraingum, sem
verða reiknaðar krónur 24.600.000,00
vegna ársins 1964.
Þau skip, sem samið hafa um að leggja
síldina inn til vinnslu, eru skyld að landa
öllum bræðslusíldarafla sínum hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins. Þó sé þeim heimilt
að leggja síldina upp annarsstaðar í ein-
stök skipti, ef löndunarbið hjá þeirri síld-
arverksmiðju S.R., sem næst er veiðisvæði
því, sem skipið er statt á, er meiri en 12
klukkustundir. Þetta gildir ekki, ef skipið
siglir með afla sinn fram hjá stað, sem
Síldarverksmiðjur ríkisins eiga síldarverk-
smiðju á, þar sem slík löndunarbið er elcki
fyrir hendi eða Síldarverksmiðjur ríkisins
geta veitt síldinni móttöku á stað, sem er
álíka nálægur eða nær veiðisvæðinu en
verksmiðja sú í eigu annarra, sem skipið
kynni að óska löndunar hjá.
Bræðslusíld, sem þegar hefur verið land-