Ægir - 01.02.1965, Page 9
ÆGIR
35
að hjá Síldarverksmiðjum ríkisins, af skip-
um þeirra útgerðarmanna eða útgerðarfé-
laga, sem kunna að óska að leggja síldina
inn til vinnslu í sumar, verður talin
vinnslusíld.
Á síldarvertíðinni sumarið 1964 hafa
engin síldveiðiskip forgangslöndun hjá
Síldai'verksmiðjum ríkisins.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins."
í endanlegri áætlun S.R. um magn
bræðslusíldar var gert ráð fyrir, að S.R.
bærist nærri 100.000 málum meira magn
bræðslusíldar en nam meðaltals móttöku
hjá verksmiðjunum undanfarinþrjúár, þ.e.
800.000 mál plús 25.000 mál hausar og
slóg. Lýsi og mjöl úr hverju máli bræðslu-
síldar var áætlað skv. meðaltali s.l. 5 ára.
Verð á lýsi og mjöli var áætlað skv.
þáverandi markaðsverði að frádregnum
sölulaunum, £64:10:0 fob á lýsinu, £51:0:0
fob á mjölinu.
Að þessu sinni fór svo, að allir þessir
áætlunarliðir urðu hagstæðir og minnist
ég þess ekki að það hafi komið fyrir áður.
Af þessum sökum eru horfur á því, að
þeir aðilar sem lögðu bræðslusíldina inn
til vinnslu skv. því sem heimilað var í
framangreindri tilkynningu muni fá veru-
iega uppbót greidda á bræðslusíldarverðið,
þegar reikningar S.R. vegna ársins 1964
hafa endanlega verið gerðir upp.
Lagður var inn til vinnslu hjá S.R.
bræðslusíldarafli 10 skipa og hálfur afli
hins ellefta.
Síldveiðin norðanlands og austan nam:
1964 1963 1962
I bræðslu, mál 2.713.544 1.268.856 2.027.220
1 salt, uppsaltaðar
tunnur 362.905 463.236 375.429
1 frystingu, upp-
mældar tunnur 51.289 32.859 39.000
Plutt til Bolunga-
víkur 21.385
Hér við bætast haus
ar og slóg, mál 60.011 83.251 82.318
Samtals: 3.209.134 1.848.202 2.523.967
Meðalafli á nót
mál og tunnur 12.959 7.809 10.852
hausar og slóg frá söltun ekki meðtalið. Hér er
ekki talin síld sem veidd var fyrir Austfjörðum
og landað var í Vestmannaeyjum eða í höfnum
við Faxaflóa.
Móttaka bræðslusíldar hjá einstökum verk-
smiðjum:
Síldarverksmiðjur ríkisins:
S.R. Siglufirði 184.588
S.R. Húsavík 30.096
S.R. Raufarhöfn 356.575
S.R. Seyðisfirði 432.846
S.R. Reyðarfirði 194.379
1.198.484
Rauðka, Siglufirði 80.532
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar h.f., Ólafsfirði 17.944
Kveldúlfur h.f., Hjalteyri 46.434
Síldarverksm. Akureyrark., Krossanesi 91.010
Sandvík h.f., Bakkafirði 25.679
Síldarverksmiðjan h.f., Vopnafirði 257.088
Síldarverksmiðjan h.f., Borgarfirði eystra 32.693
Sildarvinnslan s.f., Neskaupstað 478.231
Hraðfrystihús Eskifjarðar h.f., Eskifirði 256.958
Fiskmjölsverksmiðjan h.f., Fáskrúðsfirði 177.324
Síldariðjan, Breiðdalsvík 51.167
2.713.544
Hdldaraflinn.
Alls tóku þátt í veiðunum 243 skip á
móti 226 skipum 1963. Öll stunduðu skipin
veiði með hringnót og öll voru þau búin
kraftblökk.
Afurðir.
Afurðir úr bræðslusíldinni, sem veiddist
fyrir NA-landi og Austfjörðum á s.l. ári
að meðtöldum afurðum úr síldarúrgangi
eru áætlaðar um 72.000 tonn af lýsi og um
79.000 af mjöli. Þetta er langmesta magn,
sem nokkurntíma hefur verið framleitt af
lýsi og mjöli á einni síldarvertíð hér á
landi.