Ægir - 01.02.1965, Qupperneq 10
36
ÆGIR
Verð á síldarlýsi og síldarmjöli.
Talsvert magn af síldarlýsi var selt
fyrirfram og var verðið £70-0-0 til £71-0-0
per 1000 kg cif. Verðið lækkaði í júní-ágúst
en hækkaði þegar kom fram á haustið og
komst hæst í £77-10-0 cif. í árslok var
dræm eftirspurn.
Mikið magn af síldarmjöli var selt fyrir-
fram á 16 sh. pr. proteineiningu í tonni
cif eða tonnið á £56-16-0 cif. Verðið á
mjölinu hækkaði upp í 18 sh. per. prot-
eineiningu eða tonnið í £60-7-0 cif.
Verð á síldarmjöli á innanlandsmarkað
var ákveðið kr. 570,00 per 100 kg fob
verksmiðjuhöfn, en hafði verið kr. 500,00
árið 1963.
Heildarfobverðmæti bræðslusíldaraf-
urðanna Norðan- og Austanlands á s.l. ári
er talið nema um 1.080 milljónum króna.
Aukin afköst og geymslur og auknir
flutningar.
I sumar kom það enn einu sinni greini-
lega í ljós hve mjög skortir á það, að afköst
og þróarrými verksmiðjanna á Austfjörð-
um og Raufarhöfn svari til hinnar stór-
auknu aflagetu síldveiðiflotans.
Sést það bezt á því, að annarsvegar
námu afköst verksmiðjanna á Austfjörð-
um og Raufarhöfn s.l. sumar aðeins um
26.000 málum á sólarhring og þróarrými
þeirra samtals aðeins um 170.000 málum,
en hinsvegar nam burðarmagn síldveiði-
flotans í einni veiðiferð samtals um 300.000
málum bræðslusíldar.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins fóru
þessvegna fram á heimild sjávarútvegs-
málaráðherra til þess að auka afköst síld-
arverksmiðja S.R. á Seyðisfirði um 2.500
mál á sólarhring og Raufarhöfn um 3.000
mál og ennfremur til þess að mega auka
þróarrými og afurðageymslur við verk-
smiðjurnar á Seyðisfirði og Reyðarfirði og
til þess að gera aðrar endurbætur á verk-
smiðjunum. Alls var kostnaður við þessar
framkvæmdir áætlaðar um 95 milljónir
króna.
Sjávarútvegsmálaráðherra hefur veitt
leyfi fyrir framkvæmdum þeim sem farið
var fram á á Seyðisfirði og Reyðarfirði
og er áætlaður kostnaður við þær fram-
kvæmdir samtals um 55 milljónir króna.
Nokkur óvissa er um útvegun lánsfjár til
þess að standa straum af hluta kostnaðar-
ins við framkvæmdirnar.
S.R. hafa hvatt til aukningar vatnsveit-
unnar á Seyðisfirði og lagt fram eina
milljón króna lánsfé í því skyni.
Stjórn S.R. hefur mælt með því við
sjávarútvegsmálaráðherra, að öðrum aðil-
um væri veitt fyrirgreiðsla um byggingu
nýrra síldarverksmiðja á Raufarhöfn, Þórs-
höfn, Stöðvarfirði og Djúpavogi samtals
með 6.500—6.800 mála afköstum.
Eru byggingaframkvæmdir þessar enn
í deiglunni.
Ingvar Vilhjálmsson útgerðarmaður o.
fl. hafa þegar byrjað framkvæmdir til
undirbúnings byggingar nýrrar 2.500 mála
síldarverksmiðju á Seyðisfirði, sem á að
hefja vinnslu á komandi sumri.
Síldar- og fiskmjölsverksmiðjan að
Kletti í Reykjavík hefur fest kaup á tank-
skipi, sem lestar um 20.000 mál síldar.
Skipið er ætlað til flutninga á bræðslusíld
af austurmiðum til Reykjavíkur. Ætlunin
er að dæla síldinni úr veiðiskipunum á
miðum úti í flutningaskipið með sama eða
svipuðum hætti og gert var á m.s. Þyrli
s.l. sumar.
Aðrir verksmiðjueigendur sunnanlands
og vestan ráðgera að leigja 3 tankskip í
sama skyni og ráðamenn verksmiðjanna
fyrir norðan hafa málið til athugunar.
Ég tel að til þess að tryggja sem bezta
afgreiðslu síldveiðiflotans á sumarvertíð-
inni norðanlands og austan þá verði að
fylgjast að aukning á afköstum verksmiðj-
anna á Austfjörðum og Raufarhöfn, aukið
þróarrými, auknar geymslur fyrir afurðir
og auknir flutningar á síldinni.
Sumir hafa haldið því fram, að auknir
flutningar síldarinnar með tankskipum
myndu leysa afgreiðsluörðugleika síldveiði-
flotans til fulls. Ég tel þetta ekki líklegt
m. a. af þeirri ástæðu að takist flutning-