Ægir - 01.02.1965, Side 13
ÆGIR
39
Norður- og Austurlandssíldin.
Þrátt fyrir hina miklu síldveiði tókst
ekki að salta nema í 354.297,5 tunnur. Er
þetta lakasta söltunarárið 4 seinustu árin.
En söltunartölur seinustu 3ja ára eru svo:
1963: 463.403 (sem er metsöltun sumar-
vertíðar) 1962: 375.213 og 1961: 363.741.
Eins og árið áður var engin síld söltuð
vestan Siglufjarðar og nú bættist það við,
að á svæðinu Siglufjörður-Húsavík var
hrein ördeyða. Á þessu svæði að báðum
stöðum meðtöldum voru aðeins saltaðar
23.650 tnr. Á hinu forna höfuðbóli síldar-
söltunar á Islandi — Siglufirði — voru
aðeins saltaðar 12.634 tnr. eða sem svarar
sómasamlegri söltun á einni góðri söltunar-
stöð.
Ef söltunarsvæðinu er skipt um Langa-
nes, voru saltaðar 92.205,5 tnr. vestan
Langaness en 262.092 austan.
Eftir tegundum skiptist söltunin svo:
Cutsíld ......... 111.218 tnr.
Sykursíld........ 168.018 —
Kryddsíld ....... 75.061,5 —
Samtals: 354.205,5 tnr.
Fyrsta síldin var söltuð á Húsavík og
Raufarhöfn 30. júní. Mest var saltað á
öllu landinu 10. ágúst 18.719 tnr. og 14.
ágúst 13.072 tnr.
Á eftirtöldum 3 stöðum var saltað mest:
Seyðisfjörður ....... 93.538 tnr.
Raufarhöfn .......... 66.772 —
Neskaupstaður ....... 41.391 —
Eftirtaldar 4 söltunarstöðvar höfðu
mesta söltun:
Ströndin s.f. Seyðisfirði .. 19.410 tnr.
Auðbjörg h.f. Eskifirði .. . 17.494 —
Hafaldan h.f. Seyðisfirði . . 16.377 —
Sunnuver h.f. Seyðisfirði .. 15.514 —
Síldin var yfirleitt feit, en eins og búizt
var við bar mikið á smárri síld. Skil á milli
stórrar og smárrar síldar voru glögg. Mik-
il vinna var í því að flokka síldina, en
sölusamningar voru að mestu bundnir við
ákveðna stærð. Tafði þetta að sjálfsögðu
fyrir söltun og minnkaði afkastagetu. Það
auðveldaði söltun, að víða, einkum á Aust-
fjörðum, voru flokkunarvélar — íslenzk
uppfinning — sem reyndust vel. Árangur
varð sá, að súrsíld, sem fór til söltunar
reyndist vel að því er stærð snertir og
sennilega með betri saltsíldarárgöngum til
útflutnings. Eins og alkunna er, þá eru
okkar beztu og stærstu markaðir fyrir
stóra síld, en því miður má vænta þess,
að erfitt geti orðið næsta sumar og e.t.v.
lengur að fá þá vöru.
Samningar voru gerðir um samtals 428
þúsund tunnur. Við eftirtalin 3 lönd voru
hæstir samningar:
Svíþjóð ............ 234.500 tnr.
Sovétríkin .......... 75.000 —
Finnland ............ 58.000 —
Um áramót var búið að afskipa 321.103
tunnum fyrir FOB-verðmæti 356,7 millj.
króna. Eftir er að afskipa uppí samninga
ca. 25.000 tnr. að verðmæti 27,3 milljónir
króna. Verður þá heildarútflutningur ríf-
lega 346 þúsund tunnur að verðmæti 393
milljónir króna. Gera má ráð fyrir að ca.
2000 — 3000 tnr. verði til ráðstöfunar síð-
ar, en við skoðun til útflutnings fullnægði
hún ekki samningsákvæðum. Þegar þetta
er skrifað er ekki vitað hvort tekst að
selja, en vonir standa til þess. Þá voru
saltaðar ca. 6000 tnr. sem nota á til niður-
lagningar fyrir innlendan og erlendan
markað.
Gert er ráð fyrir að útflutningi verði
lokið um miðjan febrúar. Eins og áður
hefur það valdið miklum erfiðleikum við
útflutning, að síldarsaltendur hafa ekki
haft nægilegt vinnuafl til þess að síldin
væri tilbúin til útflutnings á tilskyldum
tíma. Hefur Síldarútvegsnefnd bæði þurft
að fresta afskipunum af þeim sökum og
einnig orðið að greiða nokkrar upphæðir
til skipa vegna biðtíma, þar sem söltunar-
Framhald á bls. 4.3