Ægir - 01.02.1965, Page 26
52
ÆGIR
unum Vestur-Þýzkalands eru seld hraðfryst mat-
væli. Fjöldi stórra kæliborða, sem taka 200 1 eða
meira, hefur aukizt úr 5000 árið 1956 í rúm
80000 árið 1963. Auk þess er mikið af smærri
kælikistum og kæliskápum. Einnig mjólkur-, fisk-
og kjötbúðir koma sér upp kæliborðum í æ stærri
stíl.
Heildsalar hafa til umráða 700 hraðfrysti-
geymslur. Iðnaðarfrystihúsin, sem hafa um 1
millj. m3 geymslurými, geta geymt 250000 lestir
af matvælum.
Sala á hraðfrystum matvælum hélt áfram að
aukast á árinu 1964, og allar líkur benda til, að
neyzlan muni aukast hröðum skrefum á komandi
árum. Er sennilega ekki ofsagt, að aukningin
verði tvöföld eða jafnvel þreföld á næstu 4 árum.
(Noryes Utenrikslumdel).
^ SKIP OG VÉLAR
*
Islenzkt síldveiðiskip
Hinn 18. janúar 1965 var undirritaður
samningur milli Magnúsar Gamalíelssonar,
útgerðarmanns í Ólafsfirði og Slippstöðv-
arinnar h.f. á Akureyri, um smíði á 335
brúttó rúmlesta stálfiskiskipi. Skipið er
teiknað af Hjálmari R. Bárðarsyni, skipa-
skoðunarstjóra, og verður af sömu gerð
og m/s Reykjaborg RE. Aðalmál skips-
ins eru: Mesta lengd 39,15 m, lengd milli
lóðlína 34,00 m, breidd 7,70 m, dýpt 3,80 m.
Aðalvél skipsins verður 800 hestafla
Mannheim vél, og skiptiskrúfubúnaður af
Hindemarck Berg gerð. Skipið verður auk
þess búið öllum fullkomnustu fiskileitar-
og siglingartækjum. Áformað er að skipið
verði þannig úr garði gert, að það geti
stundað togveiðar, auk línu-, neta- og
nótaveiðar. Upphitun í skipinu er með raf-
magni. Kraftblökk og gálgi af sömu gerð
og í m/s Reykjaborg.
Skipasmíðastöðin mun gera kaupanda
sérstakt tilboð í hliðarskrúfubúnað.
Áformað er að afhenda skipið vorið 1966.
Með smíði þessa skips fara Norðlending-
ar inn á nýjar brautir í atvinnulífinu, og
er þess að vænta, að smíði skipsins takist
veþen það mundi verða atvinnulífi Norður-
lands mikil lyftistöng.
BRUINiTOMS (!\IUSSELBURGH) LTD., IUusselbui-gh, Skotl.
Viðurkenndasta verksmiðja Bretlands í framleiðslu
allskonar stálvíra. Á því sviði hafa BRUNTONS
rutt brautina með allskonar nýjungum, til dæmis
1925, er þeir hófu framleiðslu á yfirspunnum vír,
„BEACON PRELAY PREFORMED".
Hér á landi er það fyrst og fremst sjávarútvegur-
inn, sem notað hefur BRUNTONS stálvíra. Það er
því fróðlegt að geta þess, að mestu hengibrýr lands-
ins til þessa, Skjálfandafljótsbrúin í Bárðardal (112 metra haf) og Hvít-
árbrúin hjá Iðu (109 metra haf)’, hafa eingöngu BRUNTONS burðarvíra.
Einkaumboðsmenn: V. Sigurðsson & Snæbjörnsson hf.
ÆGIR rit Fiskifélags íslands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er kringum 450 síður og kostar 100 kr. Gjalddagi er 1. júlí. Afgreiðslu- sími er 10501. Pósth. 20. Ritstj. Davíð Ólafsson, Prentað í ísafold.