Ægir - 01.07.1965, Blaðsíða 7
ÆGIR
205
Merkialjðsum fiskiskipa veröur breytt 1. september
Hinn 1. september næstkomandi taka
nýjar alþjóðasiglingareg-lur gildi, en í þeim
er gert ráð fyrir allverulegum breytingum
á ljósbúnaði fiskiskipa.
Skip, sem eru að togveiðum, skulu hafa
2 ljós hvort þráðbeint uppi af öðru með
ekki minna en 4 feta og ekki meira en 12
feta millibili. Efra ljósið skal vera grænt
og neðra ljósið hvítt og skulu þau sjást,
hvaðan sem litið er. Neðra ljósið skal vera
það miklu ofar en hliðarljósin sem nemur
tvöföldu millibili lóðréttu ljósanna.
Á skipum, sem eru að fiskveiðum öðr-
um en togveiðum skal Ijósbúnaður vera
hinn sami, að öðru leyti en því, að efra
Ijósið skal vera rautt.
Ef skipin eru styttri en 40 fet má bilið
niilli ljósanna vera 3 fet. Ljós þessi skulu
sjást 2 sjómílur álengdar að minnsta kosti.
begar veiðarfæri þessara síðarnefndu
skipa ná lengra en 500 fet út frá þeim í
lárétta stefnu, skulu þau að auki hafa
hvítt hringljós minnst 6 fet og mest 20
fet lárétt út frá lóðréttu ljósunum, í þá
átt, sem veiðarfærið er.
Á daginn skulu skip að fiskveiðum gefa
starf sitt til kynna með því að sýna, þar
sem bezt verður séð, svarta bendinga-
uiynd gerða úr tveimur keilum, hvorri uppi
af annarri og þannig að oddarnir snúi sam-
an og sé grunnflötur þeirra 2 fet að þver-
rciáli að minnsta kosti.
Séu skipin styttri en
65 fet, mega þau hafa
körfu í stað þessarar
bendingamyndar. Ef
veiðarfæri skipanna ná
lengra en 500 fet út frá
þeim í lárétta stefnu,
skulu þau að auki hafa
svarta keilu með mjóa
endann upp í þá átt,
sem veiðarfærið er.
Athygli manna skal vakin á því, að ljós
þessi má ekki sýna fyrr en 1. september
og ljósin samkvæmt siglingareglunum frá
1948 má ekki sýna eftir 1. september næst-
komandi.
Nýju siglingareglurnar eru nú í prent-
un og vænta má, að þær komi út það tím-
anlega, að mönnum gefist kostur á að
kynna sér þær fyrir gildistöku þeirra. í
þeim eru ýmsar aðrar breytingar en þær,
sem að ofan getur.
Frá skipasJcoðunarstjóra.
Efri myndin sýnir hvernig má koma fiskveiðaljósum
fyrir. Ciæta skal, að einungis verði notaðar viður-
kenndar rafleiðsiur við uppsetningn fjósanna.
Aiik ljósanna, sem sýnd eru
á neðri myndinni skulu skip
in búin venju.cg^im sig:!inffa-
ljósum.
ft S mm
HglMGLSo*
6gi€NT R T06SKIPUM
gflUTT R ópgQH Pl&KISX
HVÍTT B o LtUM PlSKI