Ægir - 15.07.1965, Blaðsíða 5
ÆGIR
219
TOGARARNIR í júní.
Afli togaranna var óvenjugóður í júní.
Voru þeir eingöngu að veiðum á heima-
miðum — NV af Garðskaga, djúpt úti af
Snæfellsnesi. Einnig voru nokkur skip úti
af Norðurlandi vestanverðu, svo og við
suðurströndina, einkum þó þeir, er sigldu
Weð aflann. Mestur hluti aflans var karfi,
einkum hjá þeim skipum, er lönduðu hér
heima, en einnig veiddist töluverður þorsk-
ur úti af Norðurlandi. Gæftir voru yfirleitt
ágætar. Alls fóru togararnir níu söluferð-
ir í mánuðinum — allar til Bretlands.
Námu sölur þeirra samtals 1549 lestum að
verðmæti 14,5 millj. króna. Meðalverð var
kr. 9,34 pr. kg. Auk þess seldi Narfi 334
lestir af heilfrystum fiski í Grimsby, að
verðmæti 2,4 millj. króna. Ekki er enn vit-
að gerla um heimalandanir, þar sem
óvenju víða var landað að þessu sinni,
Uiest sökum skorts á vinnuafli í Reykja-
vík og Hafnarfirði. Vitað er, að landanir
togaranna í Reykjavík námu samtals 3.245
lestum og á Akureyri 1.608 lestum.
ísfisksölur þriggja báta erlendis námu
samtals 7,9 lestum, að verðmæti 1,4 millj.
króna. Meðalverð var kr. 17,44 pr. kg.
SÍLDVEIÐARNAR
norðanlands og austan.
30. júní og 1. júlí. Síðustu 2 daga hefur
verið sæmilegt veður, vestan og norðvest-
an gola á miðunum fyrir Austurlandi.
Leitarskipin leituðu síldar og urðu vör við
síld A og NA af Langanesi 55—70 sjóm.
frá landi.
2. júlí. Engin síldveiði var s.l. sólar-
hring. Samkomulag náðist um síldarverð
og skipin layrjuðu að tínast út.
3. júlí. S.l. sólarhring tilkynnti eitt skip
um veiði, 150 tn.
4. júlí. 13 skip með samtals 2825 tn. til-
kynntu afla s.l. sólarhring. Veiðisvæðið
var 100—115 sjóm. NA af Langanesi.
Veður var gott á miðunum, NA gola, en
þokusúld með köflum.
5. júlí. Lítil síldveiði var s.l. sólarhring.
Aðeins 7 skip með 3600 tn. og mál til-
kynntu afla. Veiðisvæðið hefur nú færzt
nokkuð sunnar, um 120 sjóm. SA af Dala-
tanga.
6. júlí. Síðastliðinn sólarhring fengu 12
skip 19.350 mál. Síldin er bæði smá og
mögur og ekki söltunarhæf. Hægviðri var
á miðunum, sem voru 120 sjóm. SA af S
frá Dalatanga.
7. júlí. 44 skip með 14.350 mál tilkynntu
veiði s.l. sólarhring 120-130 sjóm. SA af S
frá Gerpi. Veður fór versnandi á miðunum.
8. júlí. Lítil síldveiði var s.l. sólarhring.
Aðeins 10 skip með 2.970 mál tilkynntu
veiði.
ísfisksölur s • r r i jum 1965
BRETLAND: Magn Verðmasti Meðalv.
Togarar: Dags. Sölustaður kg. isl. kr. pr. kg.
1- Hafliði 1/6 Grimsby 201.397 1.722.113 8.55
2- Surprise 2/6 Grimsby 123.317 1.713.545 13.90
3- Röðull 3/6 Grimsby 158.845 1.670.807 10.52
L Bjarni Ólafsson 8/6 Grimsby 175.515 1.599.760 9.11
5. Þormóður goði 8/6 Hull 232.042 2.107.586 9.08
Jón forseti 9/6 Hull 121.920 1.158.172 9.50
'• Víkingur 9/6 Grimsby 280.867 1.695.788 6.04
8- Þorkell máni 10/6 Grimsby 144.647. 1.264.891 8.74
9- Surprise 22/6 Gi-imsby 110.871 1.534.915 13.84
1.549.421 14.467.577
Narfi 9-10/6 Grimsby 333.5741) 2.438.305 7.26
') Allur aflinn var frystur um borð í togaranum ýmist sl.m.h. eða hausaður og verðið er cifverð.