Ægir - 15.07.1965, Side 12
226
ÆGIR
því ekki vitað, hversu mörg ár hann er í
veiðinni. Hér er reiknað með, að humar-
inn sé 3 ár í veiðinni, og er þess vegna
miðað við meðalsókn yfir 3 ár. Til hægð-
arauka er þetta nefnt meðalsókn hér eftir.
Aflamagn á togtíma er hér notað sem
mælikvarði á stofnstærð, en sóknin er
mæld í togtímum (sjá 5. mynd og 6. töflu).
Á þeim svæðum, þar sem mikil sókn er,
kemur fram samhengi milli aflamagns á
togtíma og togtímafjölda sem bein hall-
andi lína. Á öðrum svæðum þar sem sókn-
in er lítil kemur þetta samhengi ekki fram.
Þessi svæði eru ekki sýnd hér. Má segja,
að hin síðast nefndu svæði hafi ekki verið
reynd til hins ítrasta enn.
Brotna línan á 5. mynd merkir meðal-
sóknina eins og hún getur orðið fyrir
1965, sé gert ráð fyrir, að sóknin sé sú
sama 1965 og hún var 1964 á sama svæði.
Fyrir svæði 106 og 126 ætti meðalafli
1965 að vera 55 kg/klst. ± 10 kg./klst.
Meðalsóknin kemur til með að aukast frá
því 1964.
Svæði 146 er í meira jafnvægi, og má
5. mynd. Sambandið milli aflamagns á togtíma
eitt árið (merkt á línuritinu) og meðaltímasókn
þess og tveggja næstu ára á undan,
Gulland (1961).
The relation between the abundance of Norway
lobster in one year (indicated in the graph) and
the average fishing effort in this year and the
two preceeding years.
1000 togtímar