Ægir - 15.07.1965, Blaðsíða 18
232
ÆGIR
fræðilegt atriði en raunverulegt. En reynsla síð-
ustu ára hefur kennt mönnum að taka þróunina
í þorskveiðunum til alvarlegrar íhugunar.
Nú hefur alþjóðleg nefnd tekið að sér að at-
huga ofveiði þorsksins í Barentshafi og við
Bjarnarey og Svalbarða, og mun hún skila áliti
áður en mjög langt líður, á alþjóðlegri ráðstefnu.
Menn héidu því lengi fram, að aukning möskva-
stærðar væri nægileg, og Noregur hefur tekið
upp 130 mm möskva í þeirri von, að fleiri lönd
muni á eftir koma. En þróunin í togaraflota
annarra ríkja, og þá einkum Sovétríkjanna, varð
svo ör, að 130 mm möskvastærð hefði varla haft
nokkra úrslitaþýðingu.
Nú er ástandið þannig, að Rússar hafa tekið
alla stóru togarana af veiðisvæðunum í Barents-
hafi og sent þá til Nýfundnalands og annarra
staða vestan Atlantshafsins. Þessi stóru skip
gátu ekki veitt nema með tapi í Barentshafi. Nú
eru aðeins eldri og minni rússneskir togarar að
veiðum þar. Þjóðverjar hafa líka hætt að senda
togara sína á þessar slóðir og leita að nýjum
miðum.
Norskir fiskifræðingar fengu tækifæri til að
ræða þessi mál við rússneska starfsbræður sína
þegar rússneski fiskimálaráðherrann heimsótti
Bergen, og því er ekki að leyna, að spá Rúss-
anna um framtíð norsku þorskveiðanna í Lófót
er mjög óglæsileg. Spár, sem bæði Norðmenn og
Rússar hafa gert fyrir næstu ár, benda til lítil-
legrar aukningar í þorskstofninum. En Rússar,
sem fylgjast með ungþorskinum í Barentshafi
frá 2 til 4 ára aldurs, geta spáð lengra fram í
tímann. Þeir segja, að stofninum muni hraka
mjög ört eftir 1970.
Rollefsen vildi ekkert um það segja, hvaða
ráðum yrði hægt að beita til að bæta ástandið,
en sennilega myndi reynast erfitt að ná sam-
komulagi um aðferðir, sem miðuðu að því að
draga verulega úr veiðinni. Hann kvaðst hafa
séð möguleikana á svipaðri þróun þegar á árinu
1946, en þá hefði hann ekki gert sér ljóst, að
ástandið yrði jafnalvarlegt á svo stuttum tíma
og raun ber vitni. (Fiskaren).
Leiðrétting:
Villa var í töflunni um framleiðslu sjávar-
afurða 1964 í 11. tbl. bls. 196. Steinbítsmjöl (8.
liður) er talið 208.383 lestir, en á að vera 208
lestir.
Ctgerðarmenn!
STUART
Nylon síldarnœtur framleiddar af
J. W. STLART LTD.,
MUSSELBURGH, SKOTLANDI,
reynast afburðavel og eru endingargóðar.
Umboðsmenn:
Kristján Ó. Skagfjörð h.f.,
Reykjavík — Sími 24120
t' ^ r r r- " --------------^ ÆGIR — rit Fiskifélags íslands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er kringum 450 síður og kostar 100 kr. Gjalddagi er 1. júlí. AfgTeiðslu- sími er 10501. Pósth. 20. Ritstj. Davíð Ólafsson, Prentað í ísafold. - —>