Ægir - 01.09.1965, Blaðsíða 5
ÆGIR
243
veiðar, en 3 voru með handfæri. Var heild-
arafli þeirra 71 lest. Sólrún fékk 36 lestir
í dragnót, Smári 18 lestir og Pólstjarnan
17 lestir, báðir á handfæri.
AU STFIRÐINGAFJ ÓRÐUN GUR
í júlímánu’ði 1965.
1 mánuðinum var veðráttan með kald-
asta móti en gæftir voru fremur góðar. Út-
gerð á smærri bátum var lítil og afli mjög
misjafn eftir verstöðvum. T.d. hafa þeir
sem hafa róið af fjörðunum fyrir norðan
Seyðisfjörð aflað mjög lítið og sama er
að segja af syðstu fjörðunum nema Horna-
firði. En þeir sem hafa róið af fjörðunum
frá Seyðisfirði til Fáskrúðsfjarðar hafa
yfirleitt aflað vel og sumir mjög vel, þegar
miðað er við, að við hvern bát vinna lítið
annað en mennirnir sem róa og það sem
heimili þeirra geta hjálpað í landi, t.d.
við beitningu o.þ.u.l., en allir verka aflann
sjálfir í salt að mestu. Síldarsöltun var
mjög lítil í mánuðinum og yfirleitt dauft
yfir síldveiðunum. Humar- og dragnóta-
veiði var nokkuð stunduð frá Hornafirði.
Aflinn var fremur tregur.
Homafjörður: Utgerð þaðan var sama
og í fyrra mánuði, fimm stórir bátar á
síldveiðum, þrír minni bátar á humarveið-
um og þrír á dragnótaveiðum, auk þess
lögðu tveir humarveiðibátar frá Norð-
firði og Seyðisfirði þar upp afla sinn. Afli
lagður á land í mánuðinum var alls 162
tonn, þar af voru 26 tonn slitinn humar
og um 13 tonn ýsa, hitt var næstum allt
koli.
Djúpivogur: Þaðan var engin útgerð í
mánuðinum önnur en „Sunnutindur“ á
síldveiðum. Síldarverksmi ðj an tók til
starfa snemma í mánuðinum og var nú
um mánaðamótin búin að taka á móti um
20,000 málum af síld. Saltað hafði verið
1 130 tunnur.
BreiMalsvík: Ekkert annað var gert út
þar en „Sigurður Jónsson" sem var á síld-
veiðum. Síldarverksmiðjan var búin að
taka á móti um 37,000 málum af síld og
saltað hafði verið í um 400 tunnur.
Stöövarfjöröur: Engin teljandi útgerð
var þar í mánuðinum önnur en stóru bát-
arnir tveir, sem eru á síldveiðum. Það
sem hefir verið farið á sjó á opnu vél-
bátunum hefir lítinn árangur borið. Saltað
hefir verið í 300 tunnur af síld.
Fáskrúösfjöröur: Útgerð þaðan í mán-
uðinum var þrír stórir bátar á síldveiðum
og fimm minni þilfarsbátar og opnir vél-
bátar, sem róa ýmist með línu eða
handfæri. Afli þeirra hefir oftast verið
mjög tregur. Þeir salt aflann sjálfir því
frystihúsin taka ekki fisk til frystingar í
sumar. Síldarverksmiðjan var búin að
taka á móti 85,000 málum af síld af saltað
hefir verið í um 6400 tunnur og um 200
tunnur hafa verið frystar. Þrjár söltunar-
stöðvar eru starfandi.
Reyðarfjöröur: Þaðan voru stóru bát-
arnir tveir á síldveiðum og einn opinn
vélbátur frá Vattarnesi rær með hand-
færi. Afla hans hefir oftast verið tregur,
oftast hálf til heil lest í róðri og er salt-
aður. Síldarverksmiðjan var búinn að taka
á móti um 85,000 málum af síld og saltað
hafði verið í um 3000 tunnur á fjórum
söltunarstöðvum sem þar eru starfandi.
Eskifjöröur: Finim stórir bátar þaðan
voru á síldveiðum og einn var á botn-
vörpuveiðum og sigldi með aflann. Tveir
litlir bátar reru nokkuð í mánuðinum og
fiskuðu nokkuð vel. Aflann salta og verka
þeir sjálfir. Snemma í mánuðinum veiddi
einn af stóru bátunum rúmlega 100 tonn
af ýsu í nót í firðinum. Síldarverksmiðjan
var um mánaðamótin búin að taka á móti
112,583 málum af síld, og saltað hafði
verið í tæpar 10,000 tunnur á fjórum
söltunarstöðvum og 1500 tunnur höfðu
verið frystar.
Noröfjöröur: Þaðan voru níu stórir bát-
ar á síldveiðum og einn var á veiðum með
botnvörpu og sigldi með aflann. Einn 25
tonna bátur var á humarveiðum og lagði
aflann upp á Hornafirði. Einn 35 tonna
bátur var á handfæraveiðum og aflaði
fremur vel, mest á miðunum við Langanes.