Ægir - 01.09.1965, Qupperneq 6
244
ÆGIR
Fimm litlir þilfarsbátar reru talsvert í
mánuðinum og öfluðu fremur vel, aðallega
á línu, sumir ágætlega eða allt að 40 tonn
í mánuðinum. Sex eða sjö opnir vélbátar
reru lítilsháttar. Alls var afli, sem lagður
var á land í mánuðinum 256 tonn, þar að
auki er svo talsvert, sem farið hefir til
neyzlu. Síldarverksmiðjan var búin að
taka á móti 150,000 málum af síld og salt-
að hafði verið alls í 12,074 tunnur á fimm
söltunarstöðvum.
Mjóifjörður: Ekkert var róið þaðan í
mánuðinum. Síldarsöltunarstöðin sem þar
var verið að byggja, var tilbúin til að
taka á móti síld og búið var að salt í 800
tunnur.
Seyðisfjörður: Þaðan voru stóru bát-
arnir þi'ír á síldveiðum og einn 30 tonna
bátur var á humarveiðum og lagði aflann
á land á Hornafirði. Þrír litlir þilfarsbátar
reru með línu og fiskuðu nokkuð vel. Fish-
inn verkuðu þeir sjálfir í salt að mestu
leyti. Róðrar voru fáir vegna þess að sömu
mennirnir sem voru á bátunum unnu að
verkun aflans. Sá sem mestan afla hafði
fékk frá 10. júní til júlíloka um 50 tonn
í 15 sjóferðum. Rúmlega 200,000 mál af
síld hjá báðum bræðslunum, þar af voru
29,635 mál flutt til Siglufjarðar. Níu
síldarsöltunarstöðvar voru starfandi og
voru búnar að salta samtals í um 19,000
tunnur. Frystar höfðu verið 700 tunnur.
Borgarfjörður: Þaðan reri aðeins einn
opinn vélbátur með línu, en aflaði mjög
lítið. Síldarverksmiðjan var búin að taka
á móti um 17,000 málum af síld og saltað
hafði verið í 420 tunnur.
Vopnafjörður: Tveir opnir vélbátar reru
nokkuð í mánuðinum með línu en öfluðu
mjög lítið. Mestur afli í róðri var eitt tonn
en oftast minna en hálft tonn. Engin síld
barst í mánuðinum.
Bakkafjörður: Fimm opnir vélbátar
reru þar nokkuð, aðallega með handfæri
en öfluðu mjög lítið. Aflann verkuðu þeir
sjálfir í salt. Engin síld hefur borizt þang-
að í sumar.
SÍLDVEIÐARNAR
norðanlands og austan
1U. ágúst. Engin veiði var s.l. sólarhring.
Fá skip voru úti en urðu ekki vör síldar.
15. ágúst. Aðeins 1 bátur fékk 800 mál
við Hrollaugsey. Veður var sæmilegt en
strekkingur með köflum. Slæmt leitar-
veður.
16. ágúst. 10 skip fengu 3.050 tn. við
Hrollaugseyjar og í Reyðarfjarðardýpi 40
sjóm. undan landi. Gott veiðiveður var í
Reyðarfjarðardýpi, en lélegt við Jan
Mayen.
17. ágúst. S. 1. sólarhring fengu 17 skip
alls 8.130 mál og tn. 1 skip fékk 500 tn.
65—70 sjóm. A. af N. frá Dalatanga. 4
skip fengu afla við Hrollaugseyjar og 12
skip slatta í Reyðarfjarðardýpi. Vitað er
um 6 skip, sem haldið hafa á miðin við
Norður-Noreg.
18. ágúst. S.l. sólarhring fengu 2 skip
1.700 mál við Jan Mayen og 1 skip 150 tn.
í Reyðarfjarðardýpi. Sólarhringsafli 3ja
skipa var því 1.850 mál og tn.
19. ágúst. Bræla var á miðunum fyrir
austan. 7 skip tilkynntu afla samt. 7.210
mál og tn., sem fengust við Jan Mayen.
20. ágúst. Batnandi veður var á síldar-
miðunum eystra s.l. sólarhring og ágætt
veiðiveður við Jan Mayen. Sólarhringsafli
19 skipa var 6.900 mál og tn.
21. ágúst. S.l. sólarhring voru skipin að
veiðum í Reyðarfjarðardýpi, utanverðu
Gerpisflaki og við Jan Mayen. 30 skip
fengu alls 11.210 mál og tn. Hægviðri var
á miðunum. N.A. gola og þoka.
22. ágúst. Lélegt veiðiveður var í Reyð-
arfjarðardýpi, en gott veður var við Jan
Mayen. 9 skip tilkynntu veiði, sem öll
fékkst við Jan Mayen.
23. ágúst. Batnandi veiðiveður. 16 skip
tilkynntu afla úr Reyðarfjarðardýpi og
Tangaflaki 2.980 mál og tn. og frá Jan
Mayen tilkynntu 5 skip 5.400 mál og tn.
AIls fékk því 21 skip 8.380 mál og tn. s.b
sólarhring.
2J+. ágúst. Sólarhringsaflinn var 9.678
mál og tn. af 32 skipum. Síldin veiddist