Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1971, Side 6

Ægir - 01.02.1971, Side 6
20 ÆGIR ■áu 2° :0 •1—5 § *o & g •n ^ s :° já Ilg :o C K> CO 73 O A S M < V, w o »3 OT 1961 18.993 4.612 1.173 24.778 1962 21.440 2.120 1.052 24.612 1963 20.634 4.164 1.652 26.450 1964 23.484 3.816 350 854 28.504 1965 21.321 4.443 8.105 33.869 1966 17.544 4.094 19.713 41.351 1967 15.294 4.159 16.413 35.866 1968 22.586 3.809 386 11.972 38.753 1969 28.817 3.403 588 26.396 59.204 1970* 31.500 3.200 1.300 31.000 67.000 * (áætlaðar tölur) Svo sem fram kemur í þessari skýrslu, hefur bæði þorsk- og loðnumj ölsf ram- leiðslan orðið meiri en nokkru sinni fyrr síðastliðin 10 ár. Þorskmjölið komst í 28.817 tonn að því að ætl- að er. — Loðnu- mjölið var árið 1969, 26.396 tonn, en nam nú væntanlega 31.000 tonnum. Heildarframleiðslan nemur nú rúmlega 67.000 tonnum og er hún því nú ca. 8000 tonnum hærri en heildarframleiðslan 1969, en það ár hafði fiskmjölsframleiðslan auk- izt um tæplega 21 þús. tonn frá árinu áð- ur. Aukningin bæði þessi ár er aðallega vegna aukins loðnuafla. Árið 1970 er því metár hvað snertir framleiðslu á fiskmjöli. Þetta á vitanlega aðeins við um fiskmjöl og er þá ekki síldar- mjöl talið með, en í þessum línum hefur ekki verið gerð grein fyrir síldarmjöls- framleiðslunni. Venjan hefur verið sú að það sé gert sérstaklega í sambandi við skýrslu um síldarverksmiðjurnar norðan og austanlands. Einnig er af öðrum gerð grein fyrir lýsisframleiðslunni. Á árinu 1970 voru flutt út rúmlega 62.000 tonn af fiskmjöli og er talið að um áramótin 1970/1971 hafi verið í birgðum í landinu ca. 2750 tonn. Innanlandsnotkun er áætluð 3000 tonn. Helztu kaupendur að mjölinu á síðast- liðnu ári voru þessi lönd: Svíþjóð .................. 14200 tonn Bretland ................. 14000 — Danmörk .................. 11600 — Pólland .................. 11200 — Pinnland ................... 4200 — Vestur-Þýzkaland ........... 2000 — Austur-Þýzkaland ........... 3000 — Önnur lönd ................. 1900 —• Samtals 62100 tonn Fiskmjölsframleiðslan fer sem kunnugt er aðallega fram yfir vetrarmánuðina og fer útflutningurinn að mestu leyti fram á því tímabili. T. d. voru á síðastliðnu ári flutt út ca. 40 þús. tonn á tímabilinu marz- —júlí. Verðlag á hverskonar fiskmjöli var mjög hagstætt og stöðugt allt árið 1970. Meginorsökin fyrir því að svo var má án efa þakka breyttu fyrirkomulagi á sölu mjöls frá Perú. Svo sem kunnugt er, er Perú lang stærsti fiskmjölsframleiðandinn í heimin- um. Það gefur því auga leið, að Perú hlýt- ur að ráða mestu um verðlag á þessari vöru á heimsmarkaðinum. Áður, þ. e. fyrir árið 1970 voru í Perú fjórir söluhringir, sem höfðu á hendi sölu á fiskmjöli landsins í umboði framleið- enda. Ennþá fleiri seldu búklýsið. Þetta fyrirkomulag hafði í för með sér miklar verðsveiflur, þ. e. þegar skortur varð á mjöli hækkaði verðið æfinlega, en lækkaði oft óeðlilega mikið, þegar framboðið varð meira en eftirspurnin. Sú breyting varð á þessu fyrirkomulagi í aprílmánuði 1970, að ríkisstjórnin í Perú setti á fót einkasölu á fiskmjöli og búklýsi. Einkasalan tók til starfa 1. júlí 1970. Gömlu söluhringarnir drógu saman seglin strax í lok apríl, þegar hið opinbera hætti að skrásetja nýja sölusamninga frá þeim, J

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.