Ægir - 01.02.1971, Síða 7
ÆGIR
21
en« þeir störfuðu þó fram á haust þar til
afhendingartími eldri samninga rann út.
Talið er fullvíst að ríkisstjórnin í Perú
hafi fullan hug á að reyna að halda uppi
og stuðla að föstu verðlagi á fiskmjöli og
]ýsi, jafnvel með því að takmarka veiðar
ef með þarf.
Einnig er sagt að Perúmenn fylgist vel
þieð fiskistofninum og hafi hug á að koma
í veg fyrir ofveiði.
Allt þetta er mjög mikilvægt fyrir okkur
Islendinga og mikið undir því komið fyrir
okkur hvernig þróun þessara mála verður
í Perú.
Tnjggvi ólafsson:
Þorskalýsisframleiðslan 1970.
Framleiðsla á þorskalýsi nam 5403 tonn-
urn á árinu 1970, en var 4696 tonn árið
áður og hefur þannig aukizt um 707 tonn.
Eftirfarandi tafla sýnir framleiðsluna í
tonnum undanfarin 8 ár og í hvaða ástandi
hún var seld:
rH 5 60 0) o • H m 13 s 13 53 "S • H oa $ 3 75 5 » ö +> 73 +> S 3 o 53 -3 | 53 JS -9 ö C d | § ■8 e
"3 £ oæ 0 '43 13 & .S
1963 7753 1869 2557 3771 8197 753
1964 10270 1611 3279 4900 9790 812
1965 7602 1617 3020 1541 6178 818
1966 6457 1374 2843 1670 5887 578
1967 4530 952 1650 249 2851 232
1968 4575 944 1525 2834 5303 757
1969 4564 853 1519 2325 4696 735
1970 5403 1088 897 3360 5345 497
Birgðir í ársbyrjun voru 1582 tonn en í
ávslok 1144.
Utflutningur á meðalalýsi hefur aukizt
lítið eitt miðað við undanfarin 3 ár, en
fóðurlýsisútflutningurinn hefur minnkað
uð mun, eins og sjá má á töflunni. Heild-
arframleiðslan hefur aukizt um rösk 800
tonn miðað við næstu þrjú ár á undan.
Tékkóslóvakía og
Pólland keyptu
hvorki meðalalýsi
né fóðurlýsi á ár-
inu, en þessi lönd
keyptu talsvert
magn fyrir nokkr-
um árum.
Lýsisinnihald
lifrarinnar í ver-
stöðvum á Reykja-
nesi og í Reykja-
vík reyndist vera
55.2% að meðaltali (56.3% árið áður),
samkvæmt efnagreiningu Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins. Vítamíninni-
haldið í lýsinu var svipað og undanfarin
ár. Fyrir vertíðarlifur frá ofangreindum
verstöðvum voru greiddar kr. 6.72 fyrir
kíló á aðgerðarstað. Ef núverandi verðlag
á fisk- og jurtaolíum á heimsmarkaðinum
helzt á hinu nýbyrjaða ári, sem lítur út fyr-
ir að verði að minnsta kosti fyrri hluta
ársins, ætti lifrarverðið að hækka nokkuð
fyrir framleiðslu þessa árs.
Togarar og smærri verstöðvar í kring-
um landið hafa fleygt talsverðu magni af
lifur undanfarin ár vegna hins lága verðs.
Nú mun þetta breytast. Á því ári, sem nú
er að byrja, er líklegt að lifrin verði hag-
nýtt mun betur en verið hefur.
Lýsisherzla:
Á árinu 1970 jókst framleiðsla og sala
harðfeiti verulega. Eins og á undanförnum
árum var eingöngu um að ræða fram-
leiðslu til innanlandsnota, enda er afkasta-
geta herzlunnar lítt umfram það magn,
sem innanlandsmarkaðurinn þarfnast. Til
herzlunnar voru keypt samtals 955 tonn
lýsis, sem skiptist þannig:
603 tonn búklýsi
352 tonn lifrarlýsi
Framleidd voru á árinu 813 tonn af
harðfeiti og seld voru 787 tonn. Verð á
lýsi fór mjög hækkandi allt árið svo og
öðrum hráefnum s.s. nikkel, vetni og fleiru,
og varð það til þess að verð hinnar full-