Ægir - 01.04.1971, Blaðsíða 14
80
ÆGIR
Frá Frakklandi
Eggjahvíta úr jarðolíu.
í síðustu viku efndi fyrirtækið British
Petroleum (BP) til fundar í smábænum
Agen í Suður-Frakklandi, þar sem dýra-
læknar, landbúnaðarsérfræðingar og korn-
ræktarbændur voru mættir. Tilgangurinn
með þessum fundi var að upplýsa forsvars-
menn í landbúnaði í þessum héruðum um
notkun BP gers (nafnið, sem þeir notuðu
yfir eggjahvítu úr jarðolíu) í alidýrafóð-
ur og til þess að fá fram viðbrögð þeirra.
BP hefur í hyggju að stofna til margra
funda af þessu tagi víðsvegar um Frakk-
land.
Á þessum fundi kom fram, að verk-
smiðjan í Lavora tekur til starfa
í apríl n. k. Hins vegar hefur BP ekki enn
fengið leyfi hins opinbera til að selja fram-
leiðsluna sem fóðurbæti, en gerir ráð fyrir
að fá það leyfi um leið og verksmiðjan
tekur til starfa.
Þá kom fram á fundinum, að bændur
hafa áhuga á að prófa gerið í fóðurblönd-
ur bæði fyrir svín og hænsni. Ekki er þó
líklegt, að gerið verði notað í staðinn fyrir
fiskmjöl, en trúlegt að það verði notað í
stað soyabaunamjöls. Enn sem komið er
hafa bændur engin áform um að nota ger í
staðinn fyrir soyabaunamjöl í stórum stíl,
heldur vilja þeir aðeins kanna hvernig
það muni reynast. Ólíklegt er talið, að það
verði ódýrara en soyabaunamjöl í náinni
framtíð.
Á fundinum var gefið í skyn, að ger-
framleiðslan gæti verið komin upp í
200.000 tonn á ári á árunum 1974—1975.
Líka var upplýst, að umfangsmiklar rann-
sóknir á framleiðslu gers úr jarðolíu færu
fram í Japan, Kína og Sovétríkjunum, en
gerið, sem framleitt væri í þessum lönd-
um, væri ekki eins hreint og gerið, sem
BP framleiðir.
I stuttu máli, þá staðfesti BP það, sem
áður var vitað, að vegna hinnar takmörk-
uðu framleiðslu verksmiðjanna tveggja
(16.000 tonna á ári í Lavora og 8.000 tonn
á ári í Grangemouth í Skotlandi) gæti
olíuger ekki keppt við fiskmjöl í Vestur-
Evrópu fyrr en 1975, ef það yfirleitt nokk-
urn tíman getur gert það.
Grimsby á við vanda að stríða
í efnahagsmálum.
Þörf Grimsby fyrir nýjan iðnað hefur nýlega
verið staðfest með skipun nefndar innanhéraðs,
sem gera skal áætlun um verksmiðjubyggingar
og aðrar nauðsynlegar ráðstafanir.
Þessu veldur fyrst og fremst samdráttur í
fiskiðnaðinum, sem þrátt fyrir nokkurn efnaiðn-
að er aðalatvinnuvegur bæjarins, og enn frekari
samdráttur er fyrirsjáanlegur. Til dæmis má
nefna eftirfarandi:
fjarlægum miðum og verða það einkum frysti-
skip.
4. EPTA-samningarnir hafa í för með sér auk-
inn innflutning á frosnum fiski til frekari
vinnslu, og kann það í framtíðinni að rýra
gildi landfræðilegrar legu bæjarins sem
vinnslumiðstöðvar.
5. í dag er atvinnuleysi meðal karla 6.1%.
Rýrnun fiskiskipastólsins samfara minnkandi
þörf fyrir þjónustu við hann og aukin vél-
væðing — allt mun þetta hafa sín áhrif á
aukningu núverandi atvinnuleysis.
1. Svartolían, sem gufutogararnir nota til kynd-
ingar, hefur hækkað svo mjög í verði, að búazt
má við að þeim verði lagt innan árs.
2. Minni fiskiskipin, sem veiðar stunda á nálæg-
ari fiskislóðum, gerast gömul — smám saman
verður þeim lagt og engin ný koma í staðinn.
3. Færri togarar en nú munu stunda veiðar á
Með þessar staðreyndir í huga horfa bæjar-
búar með ugg til framtíðarinnar, sé ekkert að
gert. Telja þeir hið opinbera verða að skerast í
leikinn og veita þá fyrirgreiðslu, er geri iðn-
fyrirtækjum aðsetur í bænum fýsilegt.
Sumum er sú spurning efst í huga, hve mikið
atvinnuleysi þurfi að vera til þess að ríkisstjórn-
in taki við sér. Grimsby News.
ÆGIR
rit Fiskifélags íslands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er
kringum 400 síður og kostar 300 kr. Gjalddagi er 1. júlí. Afgreiðslu-
sími er 10501. Pósthólf 20. Ritstjóri Már Elísson. Prentað í Isafold.