Ægir - 15.04.1971, Blaðsíða 18
96
ÆGIR
magnið síðan borið saman. Báturinn var
við tilraunina dagana 18da til 26ta janúar
síðast liðinn í Wigton flóa í Skotlandi. Það
skelfiskssvæði, sem veitt var á, hefur
reynzt ágætt veiðisvæði með hefðbundnu
sköfunni en ógerningur að nota þar skel-
fisksvörpu. Átta höl voru tekin og dregið
þetta frá einni og allt að tveimur klukku-
stundum. Skipshöfnin var þrír menn auk
tilraunamannanna.
I fyrstu tveimur hölunum, sem tekin
voru á mjög góðum botni, veiddi tvöfalda
skafan tvöfalt meira en hefðbundna skaf-
an (hlutföllin 2:1). En þegar botn gerðist
ei.tthvað ósléttur, jafnvel þó að þar væri
ægisandur, þá snerist dæmið við, Það var
greinilegt af því, hvað kjálkar tvöföldu
sköfunnar voru lítið fægðir að hún hélzt
ekki við botn sem skyldi. Engin skel fannst
nokkru sinni í efri pokanum. Það virtist
ljóst, að vatnskraftarnir þrýstu of mikið
upp í efri hluta sköfunnar til þess að hún
fengi haldizt við botn og ef ekki væri al-
gerlega sléttur botninn, þá tæki tvöfalda
skafan upp á því að hoppa yfir botninn
eins og froskur. Það kom heldur ekkert
grjót í tvöföldu sköfuna, sem sýndi að hún
hoppaði yfir það. Ef til vill mætti þyngja
sköfuna niður með þrýstiplötu eða jafnvel
með alveg breyttri gerð, þar sem vatns-
krafturinn væri með einhverjum öðrum
hætti notaður til að þrýsta sköfunni að
botni í stað þess að lyfta henni.
Það er ætlunin að halda þessum tilraun-
um áfram á næsta „fjárhagsári“, segir í
skýrslu IDU, og hafa þá froskmenn sér til
aðstoðar.
Hefðbundna hörpudiskskafan.
Hörpudiskskafan, sem Vincent Blake
sýndi í Dyflinni og notuð er á Isle of Man
og reyndar víðar, því að Vincent Blake
hefur einnig fyrirtæki á Nýfundnalandi,
sem smíðar sköfur, er með hefðbundnu
lagi og eins og þessi, sem hér fylgir teikn-
ing af, sem er skozk, smíðuð af AndreW
Galloway, nema Blakeskafan er með
tveimur litlum þrýstiplötum sitt hvoruni
megin á millislánni á grindinni, en skozka
skafan ekki. Blakeskafan hallaðist einn-
ig meira framyfir sig, sýndist mér. Það er,
höfuðlínan náði framar en á skozku sköf-
unni. Að öðru leyti virtust þessar sköfur
eins, bæði stærð og efni.
Grundvallarhugmyndin að hefðbundnu
sköfugerðinni er runnin frá bómutrollinu.
Hún er jafnan 8 fet á lengd og 1 fet á hæð.
Hún er á 3ja feta kjálkum sitthvorummeg-
inogvið grindina er festur poki og er neðra
byrði hans úr stálhringum af tveimur
stærðum, önnur gerðin 3 þumlungar í
þvermál, hin 1 þumlungur. Á grýttum
botni geta þessir stálhringar valdið festum.
Aftan í pokann er svo fest grind með stál-
hring, sem pokinn er hífður uppá, þegar
losað er úr honum. Efnið í hefðbundnu
sköfunni er 2x(4 tommu stálrenningar í
grindinni en 3x1(4 tommu renningar í
milligerðinni. I kjálkunum er 2x% stál-
renningar.
ÆGIR
rit Fiskifélags Islands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er
kringum 400 síður og kostar 300 kr. Gjalddagi er 1. júlí. Afgreiðslu-
sími er 10501. Pósthólf 20. Ritstjóri Már Elísson. Prentað í ísafold.