Ægir - 01.08.1971, Page 3
Æ G I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
64. árg. Reykjavík 1. ágúst 1971 Nr. 13
lJtgerð og aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
1.—30. júní 1971.
Hornafjöj-Snr: Þaðan stunduðu 19 bátar
veiðar í júní mánuði, þar af 13 með
humarvörpu og 6 með handfæri. Afli
þeirra á tímabilinu var alls 476 lestir,
þar af 86 lestir sl. humar. Gæftir voru
góðar. Heildaraflinn á Hornafirði frá 1.
jan.—30. júní var alls 7.605 lestir, þar af
sl. humar 151 lest.
Vestmannaeyjar: Þaðan stunduðu 65
bátar veiðar, þar af 49 með botnvörpu, og
16 með humarvörpu. Aflinn var alls 6.213
lestir í 453 sjóferðum, þar af sl. humar
58 lestir. Auk þessa var afli aðkomubáta
0g smábáta 190 lestir. Gæftir voru góðar.
Heildaraflinn í Vestmannaeyjum frá 1.
jan.—30. júní var alls 32.984 lestir, þar
&f sl. humar 94 lestir.
Stokkseyri: Þaðan stunduðu 6 bátar
veiðar, þar af 5 með humarvörpu og 1
ftieð botnvörpu. Aflinn á tímabilinu var
alls 208 lestir, þar af 21 lest sl. humar.
Gæftir voru góðar. Heildaraflinn á Stokks-
eyri frá 1. jan.—30. júní var alls 3.551
lest, þar af 23 lestir sl. humar.
Eyrarbakki: Þaðan stunduðu 6 bátar
veiðar, þar af 4 með humarvörpu og 2
ftieð botnvörpu. Afli þeirra á tímabilinu
var alls 189 lestir í 33 sjóferðum, þar af
15 lestir sl. humar. Gæftir voru góðar.
Heildaraflinn á Eyrarbakka frá 1. jan.—
30. júní var alls 2.095 lestir, þar af sl.
humar 18 lestir.
Þorlákshöfn: Þar lönduðu 46 bátar afla
sínum í júnímánuði og afli þeirra var
sem hér segir:
lestir sjóf. sl. humar
33 bátar með humarvörpu 395 104 92
6 — — botnvörpu 358 27
6 — — handfæri 132 8
1 — — spærl.troll 244 12
46 bátar alls með 1.129 151 92
Gæftir voru góðar. Heildaraflinn frá
1. jan.—30. júní var alls 19.793 lestir,
þar af spærlingur 1.351 lest og sl. humar
113 lestir.
Grindavík: Þaðan stundaði 31 bátur
veiðar, þar af 17 með humarvörpu og
14 með botnvörpu. Afli þeirra á tímabil-
inu var alls 1.291 lest, þar af sl. humar
48 lestir. Auk þessa var afli aðkomubáta
og smábáta 910 lestir. Gæftir voru góðar.
Heildaraflinn frá 1. jan.—30. júní var alls
42.915 lestir, þar af sl. humar 48 lestir.
Sandgeröi: Þaðan stunduðu 18 bátar
veiðar, þar af 13 með humar- og botn-
vörpu, 4 með handfæri og 1 með rækju-
troll. Aflinn var alls 694 lestir, þar af
sl. humar 117 lestir og rækja 18 lestir.
Auk þessa var afli aðkomubáta 631 lest.
Gæftir voru góðar. Heildaraflinn frá 1.
jan.—30. júní var alls 14.946 lestir, þar
af sl. humar 117 lestir og rækja 65 lestir.
Keflavík: Þaðan stunduðu 39 bátar veið-
ar og var afli þeirra, sem hér segir: