Alþýðublaðið - 21.06.1923, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 21.06.1923, Qupperneq 1
Oeíld út af Alþýðuflokknnm 1923 Fimtudaginn 21. júní. 138. tölublað. Verðlækkon Iróa- nnnar. Frá því var sagt í gær, að bankarnir hefðu hækkað verðið á sterliugspundi um 1 krónu. Þar var um leið að eins bent á, hverjar yrðu afleiðingarnar af því fyrir landsfólkið, — aukin dýrtíð. £n hverjar eru orsakirnar? Hversdagslega til orða tekið má segja, að orsökin sé sú, að bankarnir geta ekki fulinægt eltirspurninni eftir útlendum gjald- eyri, en með öðrum orðum eru orsakirnar sagðar þær, að sá gjaldeyrir, sem íslendingum áskotnast erlendis fyrir útfluttar afurðir, hrökkvi ekki fyrir skuld- um, er safnast fyrir, o^ sé því reynt að draga úr kaupum erlendis með hækkun á gjald- eyrinum, svo að innflutningur minki, en í annan stað, að sölu- horfur fyrir íslenzkan sáltfisk séu slæmar. Hvor tveggja orsökin hrópar til þings og stjórnar og ásakar þau um vanrækslu, — vanræksiu um að gæta fengins fjár íslend- inga í útlöndum og vanrækslu um að tryggjá sér áhrif fisk- markaðinn. Hinu fyrra skal slept um sinn, en vikið að'hinu stðara. £>ar er handvömm einni um að kenna. Á síðasta Alþingi var borið fram frumvarp til laga um einka- sölu ríkisins á útfluttum saltfiski. Með því að samþykkja þáð gat þingið trygt íslendiugum gæða- verð og vissa sölu á fiskiaum. Með því að stinga því undir stól vann þingið það fyrir fiskbrask- arana að láta reka á reiðanum, svo að braskararnir gætu óhindr- að eyðilagt markaðinn moð Malegu framboðsbrölti. Nú kemur það þjóðinni í koíl, Allsherjarmót I. S. I. í kvöld kl. 8*/2 verður kept í: 100 metta hlaupi, úrslit. 10000 metra hlaupi. Fimtarþraut. - Boðhlaupi 4X100 metra. Reipdrættl. Aðgangur kostar 1 krónu fyrir fullorðna og 50 aura fyrir börn. Fvamkvæmdavnefndln.. að þingið sinti ekki aðvörunar- rödd Alþýðuflokksins, sem einn alIra,flokka hefir ávalt alþjóðarT heill fyrir augum f öllu starfi sínu. Sjðmannastéttm svarar. Sjómannafélagið hélt fund í gærkveldi í Iðuó til þess að ræða um kauplækkunarkröfu tog- araeigenda. Var haún svo fjöl- sóttur, að stóri salurinn var alveg troðfullur. Formaður félagsins, Sigurjón Á.‘ Ólafsson, setti fundinn og skýrði frá tilefni hans. Lýsti hann kröfum togaraeigenda og skýrði efni þeirra og afleiðingar. Tóku síðan margir til máls, og voru þeir allir á einu máli um, að í kauplækkunarkröfunum fæl- ist hin ósvífnasta árás á atkomu sjómannastéttárinnar, svo að ekki væri hugsanlegt, að nokkur heið« arlegur sjómaður gæti við þeim litið. Að loknum umræðum kom fram svo hljóðandi tillaga til fundaiályktunar; >Sjómannafélagið samþykkir að halda fast við kauptaxta þann, sem áður hefir verið sam- þyktur í félaginu og goldinn hefir verið fram áð þessu, og skoðar kauplækkunar-auglýsingu útgerðarmanna hina lúalegustu árás, sem nokkurn tíma hefir verlð hafín á fslenzka sjómanna- stétt.< Var tiilagan samþykt í einu hijóði. Þá kom fram svo hljóðandi tillaga frá Ólafi Friðrikssoni: >í fullu trausti til félagsstjórn- ariunar felur fundurinn henni að sjá um framkvæmdir þær, sem nauðsynlegar eru í tam- bandi við kaupdeiluóeirðir þær, sem togaraeigendafélagið er að stofna til nú.< Var hún samþykt í einu hljóði. Fur.duriun stóð lengi og fór vel fram og einhuga. Bar hann því órækt vitni, að sjómenn eru einráðnir að láta hvergi undan síga, heldur berjast til þrautar fyrir rétti síaum. Arðurlnn á að lenda Iijá þeim, sem með vinnunni sbap- ai* hann.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.