Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1982, Blaðsíða 14

Ægir - 01.01.1982, Blaðsíða 14
40. Fiskiþing: Framsöguerindi og ályktanir Marteinn Friðriksson: Lánamál og afkoma sjávar- útvegsins. Ég verð, eins og fleiri framsögumenn að biðj- ast afsökunar á því, að hafa ekki getað gefið mér tíma til nægilegs undir- búnings eða gagnasöfn- unar. Samþykktir fjórðungs- sambanda og fiskideilda, sem fyrir liggja eru eftir- farandi: Austfirðingar nr. 7. „Fjórðungsþing fiskideilda Austfjarða haldið á Reyðarfirði 18. og 19. sept. 1981 mótmælir þeim áróðri, sem uppi er hafður um að sjávarútvegurinn njóti betri lánakjara og annarra friðinda en aðrir atvinnuvegir landsmanna. Sjávarútvegurinn þarf að selja allar sinar afurðir erlendis í samkeppni við aðrar þjóðir, sem styrkja leynt og ljóst sinn sjávar- útveg af opinberu fé. Bendir þingið á þann mikla vanda, sem nú blasir við rekstri frystihúsanna í landinu, þar sem vitað er að þau eru rekin með verulegu tapi. Telur þingið að óhjákvæmilegt sé að gera frystihúsunum kleift að starfa án taps, því annars er hætt við rekstrarstöðvun.“ Sunnlendingar nr. 5 — „Fjórðungsþing Sunn- lendinga skorar á Fiskiþing að taka til umfjöllunar vaxandi tilhneigingu stjórnvalda til þess að færa fjármuni á milli einstakra greina sjávarútvegsins. Þingið mótmælir harðlega hverskonar millifærsl- um og mismunun milli greina.“ Sunnlendingar nr. 6— „Fjórðungsþing Sunnlend- inga varar við því að sívaxandi fjármagnskostnað- ur er að sliga atvinnuvegi þjóðarinnar og að nauð- syn beri til að endurskoða lántökukostnað, stimp- ilgjöld, svo og kjör afurða- og reksturslána til at- vinnuveganna. Verði ekkert að gert, mun það leiða til stöðvunar fleiri fyrirtækja en nú þegar er orðið.“ Vestmannaeyingar nr. 2. — „Fiskideild Vest- mannaeyja telur að sú afkoma, sem sjávarútvegur- inn þarf að búa við sé algjörlega óviðunandi og sú staða kemur alltof oft upp, að hagsmunaaðilar berast á banaspjótum við skiptingu á því, sem fæst fyrir afurðir, er aðrir aðilar eru búnir að taka sitt á þurru. Fiskideildin bendir á, að þessir sífelldu fjár- hagserfiðleikar, sem eru fyrir hendir í sjávarútveg- inum og þetta erfiðleikabasl hlýtur að þreyta alla, sem við þetta fást. Fiskideildin telur að þeir aðilar, sem fást við sjávarútveg þurfi sem flestir að snúa bökum saman, en lenda ekki alltaf í innbyrðis deil- um um hvernig skuli haga tekjuskiptingu sjávarút- vegsins.“ Vestmannaeyingar nr. 4. — „Fiskideild Vest- mannaeyja vill ítreka ályktun sem samþykkt var á síðasta aðalfundi deildarinnar um að sjóðir sjávar- útvegsins verði ávaxtaðir í viðskiptabönkum sjáv- arútvegsins. Deildin skorar á Fiskiþing að taka mál þetta fyrir og afgreiða það, því að allir geta orðið sammála um það. Það má benda á að sjóðir annarra atvinnugreina eru ávaxtaðir í viðskiptabönkum viðkomandi greina.“ Vestmannaeyingar nr. 8. — „Lánamöguleikar til þess að láta byggja skip og til viðhalds og breytinga eru fastmótaðir. Þó þykir okkur þeir í sumum til- vikum einkennilegir og minnum á að t.d. í sam- bandi við vélaskipti í skipi er lánaður ákveðinn hundraðshluti af vélarverðinu, en ekkert til þess að koma vélinni í skipið og er það þó oft helmingur kostnaðar við framkvæmdina. Þá teljum við að lánakjör sjávarútvegsins séu óeðlileg nú og bend- um á í því sambandi rekstrarafkomu aðal lána- stofnunar sjávarútvegsins Fiskveiðasjóð íslands. Þar er malað gull vegna lánakjaranna. Þá teljum við óeðlilegt að Fiskveiðasjóður íslands skuli krefjast fasteignaveðs til tryggingar lána til skipa sem eldri eru en 15 ára, jafnvel þótt þau séu í fullri tryggingu. Teljum við eðlilegt að veðbókarvottorð skeri úr um lánshæfni.“ Þessar samþykktir eru hér með lagðar fram til athugunar fyrir þá starfsnefnd þingsins, sem máli þessu verður visað til. Þá vil ég fara nokkrum orð- um um lánskjör í Fiskveiðasjóði íslands. Eins og þingfulltrúum er kunnugt er tvenns- 2 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.