Ægir - 01.01.1982, Blaðsíða 33
Með tilliti til þess hve markmið Aldurslagasjóðs
°8 Ureldingasjóðs eru samstiga og þeirrar stað-
reyndar að sjóðir þessir hafa ekki haft fjárhagslegt
bolmagn til þess að verulegur árangur náist hvað
varðar eyðingu úreltra fiskiskipa, er nauðsynlegt
ab stofna einn sjálfstæðan og sterkan sjóð, sem
tæki við lausn á þeim verkefnum, sem fyrrnefnd-
um sjóðum er ætlað að sinna.
Það leiðir af sjálfu sér að til þess að slíkur sjóður
yrði sterkur og kæmist á laggirnar, þá verður að
bnna honum fjármagn. Þar er nú þrautin þyngri.
Viö stóðum upp af fundi í gær í þessari nefnd, með
bað m.a. í huga að við yrðum á næsta fundi að fá
skýr svör um það frá ríkisvaldinu hvort ríkisvaldið
er reiðubúið á árinu 1982 að leggja eitthvað fram
sem skoða mætti kannske sem stofnframlag til
bessa sjóðs og út frá því munum við síðan leita að
'eiðum sem mættu verða til eflingar fjárhagslega
þessum sjóði. Við höfum talað nokkuð um til-
ferslu innan kerfisins á útflutningsgjaldinu.
^enn hafa gælt við það að það væri ekki óskyn-
samlegt að skerða hlut Fiskveiðasjóðs í þvi máli,
með tilliti til þess að í mörgum tilfellum yrði veru-
'e8 úrelding skipa, sem kæmi honum til góða. Þá
v°rum við helst að hugsa um það að hið svokallaða
motframlag ríkisins við það sem sjávarútvegurinn
'e8gur Fiskveiðasjóði til, yrði skert að einhverju
marki. Nú er sú hugmynd úr sögunni, því að það er
komið fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir því
ab þetta mótframlag fari til Stofnfjársjóðs fiski-
sþ'pa að öllu leyti. í sambandi við þetta mótfram-
'ag vil ég minna menn á það að í lögum um Fisk-
Ve'ðasjóð um þessi mál er gert beinlínis ráð fyrir
því að mótframlagið sé 3/4 af því sem að sjávarút-
Vegurinn sjálfur leggur til, en þessu hefur ekki
Ver'ð framfylgt, þar vantar mikið á.
Eg vil aðeins minnast á það atriði, sem varðar
stJornun á þessum hugsanlega nýja, sjálfstæða og
sterka sjóði. Ég tel að þetta eigi að vera 5 manna
stJorn og eftirtaldir aðilar tilnefni menn í hana.
Samábyrgð íslands á fiskiskipum, L.Í.Ú., Sjó-
mannasamböndin, þ.e.a.s. Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands og Sjómannasamband ís-
únds sameiginlega, og Fiskifélag íslands. Formað-
Ur og varaformaður verði skipaðir af sjávarútvegs-
raðherra. Hér er ég að leggja til að helstu félagsleg
samtök aðila málsins fái aðild að stjórn sjóðsins.
Eg er líka að leggja til að Fiskifélagið tilnefni mann
1 stJÓrn sjóðsins og byggi það á þeirri staðreynd að
fjöldi fólks sem málefni sjóðsins kemur til með að
snerta, er innan vébanda félagsins og á ekki aðild
að öðrum samtökum í sjávarútvegi. Þar að auki
ræður Fiskifélagið yfir margháttuðum upplýsing-
um um öll fiskiskip í landinu og það útaf fyrir sig
er ekki veigalítið atriði fyrir hina veigamiklu starf-
semi, er stjórn sjóðsins verður að halda upp á
hverjum tíma. Það að ég nefni Samábyrgðina,
byggist á því að nú eru flest fiskiskip sem koma til
greina sem úrelt, tryggð hjá Samábyrgðinni. Það
þýðir ekki að starfsemi sjóðsins sé að verulegu leyti
rekin á vettvangi Samábyrgðarinnar.
Varðandi þann þátt hins nýja sjóðs, sem varðar
tryggingarmál, getur verið nauðsynlegt að eiga
samvinnu við Samábyrgðina, eða eitthvert annað
skipavátryggingafélag.
Ég tók eftir því i tillögu hér frá Norðlendingum,
að þeir leggja til að þarna verði skil á milli, þ.e.a.s.
spursmálsins um tryggingamálin. Það kann vel að
vera að það væri réttara, og starfið yrði auðveld-
ara með þvi móti, að haldið yrði uppi svipuðu kerfi
um hina eiginlegu bráðafúadeild og hún yrði þá
væntanlega innan Samábyrgðar íslands.
Varðandi annan tillöguflutning frá Fjórðungs-
samböndum og deildum, sem snerta þetta mál, vís-
ast til þess að þær hafa allar komið á borð fulltrúa
þingsins og sé ég þvi ekki ástæðu til að rekja þær
frekar.
Að lokum legg ég áherslu á það að við tölum um
sjálfstæðan sjóð. Sjóð sem er ekki að styrkja menn
til að úrelda skip, heldur sjóð sem hreinlega kaupir
þau af mönnum, og að þeir fái þá greitt fyrir þessi
skip, þannig að þeir fái að lang stærstum hluta það
fé sem þeir eiga í skipunum. Svo vil ég líka leggja
áherslu á það sem ég ýjaði að áðan, og hef nú
raunar undirstrikað, að sjóðurinn verði rekinn
sjálfstætt og ekki sé heppilegt í mörgum tilfellum
að starfsemi sliks sjóðs sé meira og minna sett
undir hatt eins vátryggingafélags. Ég tek það fram
að þetta er mín skoðun.
Ályktun 40. Fiskiþings um
endurnýjun fiskiskipastólsins
40. Fiskiþing er sammála eftirfarandi úr niður-
stöðum starfshóps um endurnýjun fiskiskipaflot-
ans, sem fram koma í skýrslu til sjávarútvegsráð-
herra, dags. 13. apríl 1981:
ÆGIR — 21