Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1984, Page 42

Ægir - 01.08.1984, Page 42
framkvæmd stóðu auk Rannsóknastofnunarinnar SIS og Vélsmiðj an Héðinn. Ekki fékkst næg reynsla á vertíðinni sökum tafa vegna verkfalla. Kreistarinn var síðan prófaður í húskynnum stofnunarinnar um sumarið og virtist árangur góður (1976). Árið eftir var kreistarinn prófaður betur og virtist mega ná 6-9% af hrognum miðað við heildarþunga landaðs magns miðað við að hrygnur og hængar séu til helm- inga. Kreistaranum má koma fyrir um borð í skipi. Að ósk SH fóru fram ýmsar rannsóknir á loðnu- hrognum 1978. Vatnsmagn hrogna eykst stöðugt við vinnsluna þar til þvotti lýkur. Aðalaukningin virðist eiga sér stað áður en þau eru þvegin. Meðalvatnsinnihald frystra hrogna virtist vera 83-83.5%. Þar sem salt- vatn var notað við hreinsun var það lægra eða 80- 82%. Talsverður munur var eftir því hvort þau höfðu legið í 3% saltvatni eða vatni. Athugun á hlutfalli sprunginna hrogna á ýmsum stigum vinnsl- unnar benti ekki til þess, að um marktækan mun væri að ræða milli vinnslustiga (1978). Að beiðni SH fóru fram rannsóknir á frystum loðnuhrognum. Var mælt drop (drip) í um 70 frystum blokkum frá 10 vinnslustöðvum. Innan sömu vinnslustöðvar var dropið svipað, en hins vegar lágu niðurstöðurnar á bilinu 0.5-40.6%. Blokkirnar voru þíddar við stofu- hita. í ljós kom að þar sem notaður var sjór við hreinsunina var það 7.6-35.5%. Flest sýni með lítið drop eða undir 1,5% höfðu vatnsmagn 81-84% en vatnsmagn sýna með yfir 20% drop (drip) lá fremur á bilinu 83-85%. Línulegt samband reyndist milli drops (í %) og hlutfalls sprunginna hrogna. Athug- anir gáfu til kynna, að hrognin springi við frystingu. Sjór eða saltvatn var talið auka heilnæmi hrognanna (1980). Á næsta ári var þessum rannsóknum haldið áfram. I ljós kom að meginreglan virtist vera að ef salt í hrognum mældist yfir 1% var drop lágt eða undir 10%. Ef saltmagn reyndist undir 1.0% mæld- ist drop 10-15%. Athuganirgáfutilkynna, aðhrogn springi í frystingu ef notað er ferskt vatn við hreinsun en notkun saltvatns komi að mestu í veg fyrir slíkt. í einni vinnslustöð varð vart við mikla samloðun hrogna. Athuganir sýndu, að límefni það sem er til staðar í hrognunum og verður virkt við hrygningu (frjóvgun) hafi orðið virkt í vinnslurás- inni. Hætta á slíkri samloðun er einungis í mjög þroskuðum hrognum. Ekki fannst skýring á þessu (1981). Að ósk SH voru gerðar athuganir á þiðnun loðnuhrogna og bornar saman aðferðir til mælinga á dropi í þeim tilgangi að finna aðferð, er gæfi sem réttasta mynd af dropi og nota mætti í sölusamm ingum (1982). Gerlarannsóknir Árið 1961 tók til starfa gerladeild við Rannsókna- stofuna. Um nokkurra ára skeið hafði þá gerladeild Atvinnudeildar Háskólans fengið afnot af húsnæði 1 byggingunni sem var að rísa að Skúlagötu 4, þar sem nú eru til húsa Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins og Hafrannsóknastofnun. Þó að hér hafi verið um formsatriði að ræða efldist starf Rannsóknastof- unnar að miklum mun við þessa breytingu eins og vænta mátti. Þess er þó að geta að gerladeildin ann- aðist jafnframt mikið starf fyrir heilbrigðisyfirvölá allt þangað til Matvælarannsóknir ríkisins tóku til starfa 1976. Aukþesshefurgerladeildinalltafunnið mikið að eftirliti einkum fyrir lagmetisiðnaðinn- Hún hefur t.d. nú eftirlit með öllu útfluttu lagme11 og veitir margs konar þjónustu í því sambandi. Árið 1961 var lokið rannsókn á gerlagróðri 1 söltuðum ufsa og sjólaxi er hófst 1960. Þá vorn hafnar rannsóknir á hugsanlegri salmonellamengu11 í fiskmjölsverksmiðjum og í fiskmjöli vegna kraina frá erlendum mjölkaupendum um upplýsingar um salmonella í mjöli. Var þá gerð rækileg úttekt a verksmiðjum á Siglufirði og Raufarhöfn en eng111 salmonella fannst við þær rannsóknir. Þá var og lokið við rannsóknir á vatni og sjó að beiðni Fersk' fiskeftirlitsins en þær hófust 1960. Voru tekin sýnl og rannsakaðar aðstæður í nær öllum verstöðvurn og fiskverkunarstöðvum á landinu (1961). An 1962 voru gerðar margvíslegar rannsóknir og athug anir að beiðni sama aðila og áður. Voru það gerln' rannsóknir á sjó og vatni, ferskum og frystum fiÁ flökum, karfa í sambandi við tilraunir með acron- ize-is, vegna mismunandi aðferða við fiskþvott. a innyflainnihaldi ferskrar vetrarsíldar og mælingar á klórmagni vatns og sjávar í sambandi við notku11 klórtækis í veiðiskipi (1962). Á næsta ári var enn haldið áfram rannsóknum á gerlainnihaldi fisks 1 vinnslu í hraðfrystihúsum á Suðvesturlandi mcl aðstoð Ferskfiskeftirlitsins og sölusamtakanna. 71 gangurinn var að fá yfirlit yfir hreinlætisástand 1 hraðfrystihúsum ásamt gerlafræðilegu ástandi fisk^ í vinnslu. Alls var farið í 36 frystihús og tekin - sýni af fiski úr flökun og roðflettingu, af flökun1 snyrtum og tilbúnum til frystingar, af frystun1 426 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.